Mér þykir hugmyndin um að taka saman lista yfir "lög ársins" í rauninni fremur fáránleg. Hvernig í ósköpunum á að færa rök fyrir því að eitt stakt lag sé endilega betra en eitthvað annað án samhengis eða einhverskonar afmörkunar? Sérstaklega ef þau koma nú úr sitthvorri áttinni, eru sett fram á gjörólíkan hátt eða með ólíkum markmiðum? Þessvegna kýs ég að kalla þennan lista " Upphálds lögin mín frá árinu 2010 ". Ég er að tala á persónulegum nótum, gera grein fyrir persónulegri upplifun og hirði lítið um rökfærslur eða argúment. Ég vona bara að þið hafið gaman af - [...]

Einkunn: 4,0 Útgáfuár: 2010 Útgáfa: Cod Music Jónas Sigurðsson er þrælmerkilegur músíkant fyrir margar sakir. Fyrir það fyrsta mætti nefna að hann samdi vinsælasta lag gítargutlara Íslands fyrir einhverjum rúmum áratugi: “Rangur maður”. Þar að auki skilst mér að um árabil hafi hann verið einn frambærilegasti trommari landsins. Og svo náði hann að heilla gagnrýnendur upp úr skónum með sinni fyrstu sólóskífu árið 2007, Þar sem malbikið svífur mun ég dansa . Platan kom eins og þruma [...]

Þann 10.10.10 mun Jónas Sigurðsson senda frá sér plötuna Allt er eitthvað . Platan, sem inniheldur 10 lög, er önnur plata Jónasar Sigurðssonar en árið 2006 gaf hann út plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa . Lagið „Hamingjan er hér“ hefur verið að gera það feikigott á öldum ljósvakans undanfarnar vikur en nú er komið að næsta lagi í spilun. Lagið „Allt er eitthvað“ er titillag plötunnar og verður hægt að sækja það frítt á tónlist.is. Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað [...]

Jónas Sigurðsson , sem síðast sendi frá sér plötuna Þar Sem Malbikið Svífur Mun Ég Dansa , vinnur nú að sinni annari plötu ásamt sveit sinni Ritvélum Framtíðarinnar . Mun nýja platan heita Allt Er Eitthvað og kemur út fyrsta október næstkomandi á vegum COD Music. Fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu, "Hamingjan er hér" var frumflutt á Rás 2 í gær og hefur þegar vakið mikla og verðskuldaða athygli. Lagið má nú nálgast frítt til niðurhals á Tónlist.is en einnig má heyra það á heimasíðu Jónasar . [...]