Þetta myndband úr sjónvarpsþættinum Fernwood Tonight frá 1977 er eitt það allra besta sem ég hef séð með meistara Tom Wait s. "I'd rather have a bottle in front of me than a frontal lobotomy" er ein fleygasta setning sem nokkur tónlistarmaður hefur látið frá sér í sögunni.
Hin geðþekka sveit Maximo Park var fyrr í kvöld að senda frá sér myndband við nýjustu smáskífuna af væntanlegri plötu sveitarinnar. Smáskífan kemur út 4. maí en platan, Quicken The Heart , kemur út þann ellefta sama mánaðar. Maximo Park - The Kids Are Sick Again

Fyrir utan hina frábæru sveit Procol Harum þá er það önnur ensk sveit sem er í mestu uppáhaldi hjá mér. Moody Blues heitir hún og á langan glæstan feril að baki sem teygir sig allt aftur til ársins 1964. Á næstu misserum ætla ég að stikla á stóru varðandi feril sveitarinnar og kynna ykkur fyrir nokkrum að þeirra bestu lögum. Moody Blues var stofnuð af þeim Michael Pinder og Ray Thomas sem blús band en um leið og línur tóku að skýrast í liðsskipan sveitarinnar, og þeir [...]
Eftir mikla vinnu og þó nokkrar pælingar tókst okkur félugunum að setja nýjan vef Rjómans í loftið á réttum tíma. Við erum auðvitað ægilega stoltir af bæði okkur og nýja vefnum og sjáum fyrir okkur stóra og mikla hluti í framtíðinni. Ég hvet alla áhugamenn um tónlist og tengd málefni að einhenda sér yfir á hinn nýja Rjóma , virða fyrir sér kræsingarnar og taka svo virkann þátt í umræðunni. www.rjóminn.is Þess má einnig geta að Rjóminn er að sjálfsögðu á [...]

Ég er svoldið í því að grafa upp gamla góða 90's slagara um þessar mundir. Var að fara í gegnum gamalt Weezer efni þegar ég mundi allt í einu eftir The Rentals , hliðarverkefni bassaleikarans Matt Sharp , sem hann svo yfirgaf Rivers cuomo og félaga fyrir stuttu seinna. Fyrsta plata The Rentals , Return Of The Rentals , er, fyrir utan Destroyer með Kiss og fyrstu plötu Weezer , mín uppáhalds plata. Á henni eru eintómir hittarar og melódíur svo ljúfar [...]

Boston sveitin Passion Pit hefur verið að hreyfa við all nokkrum bakendum undanfarið með laginu "Sleepyhead". Passion Pit er hugarfóstur Michael nokkurs Angelakos en hann sér um söng og laga- og textasmíðar. Á tónleikum spila með honum fjórir hressir ungir menn vopnaðir gífurlegu úrvali hljómborða og hljóðsmala auk hversdagslegri hljóðfærum eins og trommum og bassa. Sveitin hefur verið að hita upp fyrir bönd á borð við Death Cab For Cutie , Girl Talk , These New Puritans og fleiri og oftar en ekki skilið þau eftir í rykinu. Hver veit [...]

Hver man ekki eftir þessum slagara? Þori að veðja að hann var mörgum ykkar löngu gleymdur. Sjálfur hafði ég steingleymt þessu frábæra "one hit wonder" sænsku sveitarinnar Whale en skífuþeytirinn í undirmeðvitundinni hafði greinilega grafið það upp og smellt á fóninn. Ég fór því auðvitað beint í rykfallið diskasafnið mitt og gróf upp plötuna We Care þar sem þetta lag er að finna. Mynduð þið trúa því að það séu að verða komin 15 ár síðan platan kom út? Djöfull líður tíminn! [MP3] Whale - Hobo Humpin Slobo Babe

Eins og glöggir lesendur bloggsins hafa eflaust tekið eftir hefur eitthvað lítið farið fyrir skrifum og tónlistarumfjöllun hér. Þetta á sér allt eðlilegar skýringar auðvitað. Í fyrsta lagi er það að sjálfsögðu gamla góða letin, nema hvað. Í öðru lagi er það endurlífgun Rjómans sem ég hef verið að vinna að í samvinnu við hann Samúel samverkamann minn. Í þriðja lagi er það Twitter en þar hef ég verið að "tvíta" bæði fyrir sjálfan mig og einnig fyrir hönd Rjómans . Á Twitter hef ég verið að "tvíta" um og vísa í lifandi [...]
Enn og aftur fær blessað tónlistarbloggið að sitja á hakanum. Of mikið að gera á öðrum vígstöðvum. Ég er samt búinn að hafa lifandi helvítis helling af tónlist í eyrunum eins og alltaf. Læt hér óútskýrðan og óflokkaðan lagalista fylgja. Eina sem þið þurfið að vita er að þetta er allt saman mestu gull og gersemar. Eðal stöff! [MP3] François Virot - Not The One [MP3] Peter Adams - The Observatory [MP3] Fever Ray - If I Had A Heart [MP3] Ida Maria [...]

Þann 19. næstkomandi mun meistari Tom Jenkinson , betur þekktur sem Squarepusher , gefa út EP plötuna Numbers Lucent en kemur út í beinu framhaldi af síðustu breiðskífu hans Just A Souvenir . Það er hreint með ólíkindum hvað þetta ólíkindatól nær að koma manni stöðugt á óvart eins og glögglega má heyra í laginu "Illegal Dustbin" sem gefið er frítt af þessu tilefni. [MP3] Squarepusher - Illegal Dustbin

Ein er sú sveit sem algerlega hefur fram hjá mér farið síðasta tja...eitt og hálfa árið eða svo en þetta er hið stórgóða breska tríó The KBC . Augljós ástæða þess að drífandi og taktfastir tónar þremenninganna í The KBC hafa ekki borist mér til eyrna er sú að báðar stúdíóplötur þeirra voru gefnar út í Japan og eingöngu þar. Sem er með öllu óskiljanlegt því, þó þeir gerir það örugglega gott í Japan (eins og svo margar sveitir), þá er tónlist þeirra það góð að þeir myndu án efa næla sér í feitann og myndarlegan hóp [...]

Ég hef alltaf verið mikill Jethro Tull aðdáandi en þó á mínum eigin forsendum. Ég held t.d. ekki mest upp á þær plötur sem aðdáendur Tull mæra yfirleitt hvað mest. Thick As A Brick er að sjálfsögðu frábær plata en hún er ekki uppáhalds hjá mér. Ég tæki Songs From The Wood fram yfir hana í hvert skipti. En best þykir mér þó snilldarverkið Heavy Horses en skífan sú, sem kom út 1978, þykir mér sameina allt það besta sem Tull býður uppá. Hún er líka [...]

Þá er komið að hinni árlegu uppgjörsfærlu. Bestu plötur ársins kynntar innlendar sem erlendar sem og lög ársins. Einnig nefni ég áhugaverðar plötur úr heimi raftónlistar og ekki má gleyma blessuðu þungmálmarokkinu. Besta erlenda plata ársins Fleet Foxes - Fleet Foxes Það sem heillar mest við þessa samnefndu plötu Fleet Foxes er áreinsluleysið og viðkunnanleikinn sem blasir við manni þó tónlistin sé fullkomlega einstök og óvænt. Það er eins og Robin Pecknold, söngvari og lagasmiður sveitarinnar, hafi ekkert fyrir því að semja lögin og þau hrökkvi af honum [...]
...sagði skáldið og gott ef ekki mætti greina smá mæðu í orðum hans. Það er samt engin mæða í gangi í heimi tónlistar. Þar er allt í svaka blússi og allir í rosa stuði. Eða þannig. Ég er að vinna í algerri dómsdags bloggfærslu um lög ársins og bestu plöturnar bæði innlendar og erlendar. Færslan sú ætti að sjá dagsins ljós milli jóla og nýárs. Til að létta ykkur lundina á meðan og stytta biðina eftir blessuðum jólunum eru hér þrjú bærileg jólalög í fluntingi góðkunningja bloggsins: [MP3] 65 Days Of Static - Im Dreaming [...]

Það er nú fátt sem kemur manni í gott jólaskap og vinir vorir í Weezer að spila sígild jólalög eins og þeim einum er lagið. Og ekki skemmir það fyrir að hljómurinn minni á þá tíma þegar sveitin var upp á sitt besta. Þeir hafa nú ekki lagt neitt agalega mikið í þetta þeir Kuomo og félagar (eru bara að redda smá skotsilfri fyrir jólin) en hey...who cares? Það eru að koma jól og lundin er létt. Og léttist til muna við að heyra fagra og kunnuglega tóna sem þessa: [MP3] Weezer - O Holy Night

Meistari Toggi sendi frá sér nýjan einhleyping um daginn og hljómar hann einstaklega vel. Heimildir herma að afar nafntogaður einstaklingur syngi bakraddir en aðstandendur lagsins hafa svarist þagnareið um hver það er. Vilja menn þó meina að ef vel er lagt við hlustir megi greina hver huldubarkinn er. [MP3] Toggi - Silly Old Song Eberg lauk nýlega vinnslu á sinni þriðju plötu en hún hefur hlotið titilinn Antidote . Ekki veit ég nú hvenær platan sú mun birtast í höllum Mammons en það mun líklegast verða snemma [...]

Ég verð nú seint sakaður um að hafa gaman að danstónlist og þá sérstaklega þessu svokallaða elektró-poppi sem tröllriðið hefur heimsbyggðinni síðustu misseri. Ég geri mér vissulega grein fyrir því að sumt af þessari tónlist, t.d. sú sem Daft Punk og Justice spila, er mjög góð en hún heillar mig bara ekki eins og svo margt annað sem berst mér til eyrna. Það er því með eindæmum ánægjulegt að heyra loksins í sveit (og það franskri) sem sameinar það besta úr heimi rafpopps og indie tónlistar í einum unaðslegum bræðingi. Ef þú skyldir, af einhverjum óskiljanlegum [...]

Frændur vorir danir ná annað slagið að punga út einni og einni spennandi og frumlegri poppsveit. No And The Maybes passar svo sannarlega í þann flokk og fer létt með það. Ég verð eiginlega að játa að ég hef ekki heyrt jafn áheyrilega tónlist frá dönum síðan ég heyrði fyrst í Figurines hérna um árið. No And The Maybes feta í svipuð fótspor og Figurines hvað sækadelískt nýaldarpopp varðar en stíga þó skrefinu lengra og bragðbæta tónlistargrautinn með barokkpoppi ala Vampire Weekend , 80's nýbylgju og rafrænum áhrifum ýmsum sem erfitt [...]

Ljúflingurinn ofan af skaga hann Geir Harðar gaf í vikunni út sína aðra plötu en hún hlaut nafnið Týndi Sauðurinn . Lög og textar eru eftir Geir sjálfan en útsetningar og upptökustjórn voru í höndum Huldars Freys Arnarsonar . Fyrir mér hljómar Geir eins og blanda af Megasi á yngri árum og Bjartmari Guðlaugssyni með blússkotnu undirspili Beck ala Sea Change . Geir, sem syngur m.a. um syndarana sem saurga musteri sín, hirðinn góða og samskipti sín við hitt kynið, er snilldar textasmiður. Sem dæmi [...]
Vitiði hvað er málið? How I became The Bomb er málið. Algerlega. Ekki spurning. Heyrði það strax við fyrstu hlustun. Nýja frýja stafræna EP platan þeirra, Who Dares Wins , er líka málið. Algerlega. Ekki spurning. Og svo er það myndbandið við lagið "Salvage Mission". Það er málið. Algerlega. Ekki spurning. Og lagið sjalft. Þarf ég að segja það? [MP3] How I became The Bomb - Salvage Mission How I Became the Bomb - Salvage Mission from How I Became the Bomb on [...]