Blog: MP3 Blogg Dauðans

Skráning?

Hvernig ætli maður geti skráð sig í þennan hóp? Það væri gaman fyrir marga að fylgjast með framhaldinu, en ég finn hvergi upplýsingar um það.

Fluttur á Rjómann

Ef einhver skyldi detta inn á þetta músíkblogg mitt ennþá, þá er ég farinn að rita pistla á http://www.rjominn.is . Endilega kíkja þangað! Nýjasta færslan um splunknýja plötu The Way Down! Stuðkveðja, Maggi

hvað varð um "eystri"?

er ekki rétt að segja "eystri katlinum"? sbr. borgarfjörður eystri? eða eystri rangá? eða tíðkast nú að segja borgarfjörður austari? eða er "eystri" bara notað í staðarnöfnum?

Indiepopp dagsins - Tullycraft

Tulllycraft - The Punks are Writing Love Songs
Tullycraft er ein skemmtilegasta indiepopp sveitin, hika ekki við að smyrja vel af hallærislegum bakröddum og spila hratt. Hérna er lag um pönkara! Vúhú! Þetta hressa band frá Bandaríkjunum er þekktast fyrir smellinn "Popsongs your new boyfriend's too stupid to know about".

Indiepopp dagsins - Papa Topo

Papa Topo - La Chica Vampira
Papa Topo er nýjasta æðið frá Spáni. Þetta eru tveir krakkar sem varla hafa skriðið upp úr táningsárunum, Adriá og Paula. Adriá uppgötvaði indiepopp þegar hann var bara 13 ára, og þetta höfðaði svona líka vel til hans. Lagið þeirra "Oso Panda" er æðislegt dæmi um velheppnað Twee Popp, meðan annar smellur frá þeim er pönkaðri, einskonar Twee pönk. Og hvað er svo þetta Twee sem allir eru alltaf að tala um? Jú, þetta er einskonar barnaleg DIY popptónlist, oft með þessu pönk elementi sem einkennist af því að það skiptir ekki máli hvað þú getur heldur hvað þú gerir. [...]

Indiepopp dagsins - Linda Guilala

LINDA GUILALA - Nadie se dará cuenta
Þegar Juniper Moon gaf upp öndina fyrir nokkrum árum síðan, þá fóru trommarinn Ivan og hljómborðsleikkonan Eva að gera saman tónlist undir heitinu Linda Guilala. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá er Guilala ófreskja úr japanskri sci-fi mynd sem heitir The X from Outer Space. Linda þýðir svo "falleg/ur". Hérna er mynd af Guilala: http://4.bp.blogspot.com/_QfaC g-DskZY/R6VBsLaEKKI/AAAAAAAAAj I/Bcwv06NrtGA/s400/wmguilala.j pg Þetta band þeirra Ivans og Evu er sannarlega að slá í gegn þunglyndislegu rifnum-gítara dans-indiepoppi. Hérna er mjög gott tóndæmi. Frábært stöff í alla staði.

Indiepopp dagsins - Juniper Moon

Juniper Moon - A veces sí, a veces no
Ein undirtýpan af hinu annars frábæra indiepoppi er svokallað popp-pönk. Að öðrum ólöstuðum þá var Juniper Moon ein besta slíka sveitin en hún er núna illu heilli hætt störfum. Meðlimir þeirrrar sveitar eiga þó eftir að koma við sögu hér aftur innan skamms. Sveitin a tarna var frá Ponferrada á Spáni. Hún gaf bara út eina plötu, og fékk einnig inni á Rough Trade safnplötu og á tímabili leit út fyrir að hún næði almennri hylli í hinum enskumælandi rokk heimi einnig. Kíkjum á eitt hresst lag með bandinu: Ef þetta blæs ekki sokkana [...]

Indipopp dagsins - The Like Young, aftur

The Like Young - "Out to Get Me"
Reglulegir lesendur þessa bloggs kannast nú eflaust við hljómsveitina Wolfie sem ég hef póstað hér áður. Frábær sveit sem þau skötuhjú Amanda og Joe voru í áður en þau stofnuðu The Like Young. Oft fær maður æði fyrir einhverjum hljómsveitum í kannski nokkrar vikur, eða bara daga, og gleymir þeim svo, enda er núna hægt að sækja alla tónlist þegar maður vill, og henda henni aftur án nokkurs skaða. The Like Young er hinsvegar band sem ég sný alltaf aftur til. Hérna er magnað lag sem heitir "Out to get you": Fyrir fróðleiksþyrsta þá [...]

Indiepopp dagsins - The Like Young

The Like Young - "Snobs and Slobs"
The Like Young er ÆÐISLEGT band. Minnir stundum dálítið á Weezer, bara miklu svalara. Hjónakornin Joe og Amanda skipa þetta band. Og þetta er lagið Snobs and Slobs sem er frábært.

Indiepopp dagsins - MJ Hibbett and the Validators, aftur

My Boss Was In An Indie Band Once
Hver hefur ekki átt yfirmann sem var í indie bandi einu sinni? Hlustið eftir skemmtilegum bakröddum.

Indiepopp dagsins - MJ Hibbett and the Validators

Do The Indie Kid
Ekki veit ég nú neitt af viti um þetta band, en þetta er flott lag með skemmtilegum texta. Og þetta er fyndi af því að það er satt. Nú er bara að leggja vel við hlustir og læra "indie kid" dansinn. "Do the indie kid" heitir þessi smellur. At the height of Britpop I found myself in France I went to an Indie Disco There to dance The French were enthusiastic They served the beer in pints But they partied like it was 1959 They [...]

Indiepopp dagsins - Pale Man Made

Pale Man Made
Svei mér þá alla daga, ég hef hreinlega gleymt indiepoppi dagsins undanfarið. Það eina sem ég veit um band dagsins er að það er frá Newcastle (í Bretalandi). Þetta er bara rosalega svalt, einfalt, hrátt popp, rifinn gítar, kristin hersh-legur texti sem enginn skilur neitt í. Njótið vel!

Indiepopp dagsins - meira með La Casa Azul

LA CASA AZUL - Yo también (tema principal de la película Yo, también)
Í gær kom það upp úr kafinu að hressu krakkarnir í La Casa Azul eru alls ekkert tónlistarmenn. Eftir því sem ég kemst næst var það árið 2004 sem gaur að nafni Guille Milkyway opinberaði fyrir heiminum að hann spilar og syngur sjálfur öll lög bandsins, en áður var hann bara titlaður sem pródúsent. Flest allt sem skrifað er um bandið er á spænsku, en mér sýnist að töluvert af ungum stúlkum hafi orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum þá. Ekki er þó allt búið, heldur var opinbera skýringin sú að krakkarnir sem áður þóttust spila séu vélmenni, og [...]

Indiepopp dagsins - La Casa Azul

La casa Azul - Superguay
Enn á ný höldum við til Spánar og heilsum upp á Elefant útgáfuna. Flaggskip Elefant er án efa hljómsveitin La Casa Azul: Ég hef alltaf haft dálæti á myndböndum þar sem hljóðfærin eru augljóslega ekki í sambandi við neitt, og jafnvel má draga í efa að fólkið kunni að spila á þau yfirleitt. Litagleðin er líka framúrskarandi stórkostleg, og blöðrurnar klikka ekki. Eina sem klikkar er helvítis Vocoder-inn, en það apparat fer iðullega í mínar fínustu. En það er ekki allt sem sýnist. Eftir nokkurra ára sigurgöngu þar sem hljómsveitin hafði [...]

Indiepopp dagsins - Camera Obscura

Camera Obscura - Let's Get Out Of This Country
Camera Obscura segja í lagi dagsins akkúrat það sem við höfum ábyggilega öll verið að hugsa endrum og eins seinasta árið, og flest auðvitað sagt upphátt líka. Þetta er skoskt band sem spilar afar fágað indiepopp með ósköpum af strengjahljóðfærum. Minnir dáldið á gáfumannapoppið hjá Lloyd Cole í gamla daga. Þetta band dælir út smellum en er næsta óþekkt ennþá. Breska bandið Horowitz sem er í miklu uppáhaldi hjá mér samdi óð til þunglyndislegrar söngkonu bandins sem heyra má hér: http://mp3.blog.is/blog/mp3/en try/277431/ En hérna er smellurinn "Lets' get out of this country", [...]

Indiepopp dagsins - Cola Jet Set

COLA JET SET - En esta pista ya no se puede bailar
Ekki veit ég hvað hrikalega hressu krakkarnir í Cola Jet Set eru að syngja um í lagi sínu "En esta pista ya no se puede bailar", og ef einhver skilur þetta þá væri gaman að vita hvað það þýðir. Eitt er víst að það er ákaflega gaman hjá þeim. Þetta band gefur út hjá Elefant á spáni líka, eins og The School í gær, og líklegt er að Elefant verði áberandi í umræðunni hér á næstunni. Njótið vel! Cola Jet Set á Myspace: http://www.myspace.com/colajet set

Indiepopp dagsins - The School

THE SCHOOL - is he really coming home?
Best að halda áfram að breiða út fagnaðarboðskap indie poppsins. Lag dagsins er glæný og funheit popp ballaða með hljómsveitinni The School sem er frá Cardiff í Wales. Fyrsta breiðskífa þeirra er væntanleg í maí frá spænsku útgáfunni Elefant. Hérna er hægt að hlusta á plötuna í heild sinni: http://www.deezer.com/es/music /the-school/loveless-unbelieve r-509117#music/the-school/love less-unbeliever-509117 Og hérna er myspace-ið þeirra: http://www.myspace.com/thescho olband Verði ykkur að góðu!

smá pæling...

... þegar einhver svona vitleysingur reynir að opna hurð í flugi, er einhver möguleik á að honum takist það í raun og veru?

Afþakkar þrjár milljónir á ári

Afþakkar þrjár milljónir á ári Ekki var minnst einu orði á þetta á MBL, og þetta var sett inn klukkan 4 um nótt á visir.is. Fréttin því horfin af forsíðu þegar flest fólk fór að bera sig eftir fréttum. Mér finnst það mætti fjalla meira um þetta, og einmitt leita eftir viðbrögðum frá Bjarna og Sigmundi. Fréttablaðið, 27. okt. 2009 04:00 Afþakkar þrjár milljónir á ári [...]

Íbúar í 3. hverfi eru hvattir til að mæta að gönguljósum á Miklubraut gengt Reykjahlíð / Kjarvalsstöðum kl. 16:30 á miðvikudaginn.

Íbúar í 3. hverfi eru hvattir til að mæta að gönguljósum á Miklubraut gengt Reykjahlíð / Kjarvalsstöðum kl. 16:30 á miðvikudaginn. Mér er ljúft og skylt að koma þessum boðum áleiðis. Sýndu tillitsemi – Hér býr fólk – Minni hávaða – Betra loft Íbúar í Hlíðum boða til aðgerða á Miklubraut fimmtudaginn 21.október kl. 16:30 Íbúar í Hlíðum vilja draga andann rólegir í sínu eigin hverfi og hlífa börnunum við mengunaráhrifum [...]
Page   1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Next >