![[MP3] Roadside Poppies](http://cdn.elbo.ws/posts/1162097_lg.jpg)
Mér varð það á í fyrrasumar að fjölga mannkyninu. Þá fæddist lítil yndisleg stúlka sem telst þá vera sjötti fjölskyldumeðlimurinn, fyrir utan kettina og hamsturinn. Skyndilega varð fallega bláa Nubiran mín (sem gekk undir heitinu Bláa Bláberið) alltof lítil og við fórum að svipast um eftir stærri bíl. Eftir nokkar umhugsun var ákveðið að splæsa í þægindi í stað sparnaðar og verslaður var risastór 7 manna Chevrolet sem fékk nafnið Rauða Rúsínan. Síðan skall á kreppa og skrjóðurinn sá er þeim galla búinn að allir mælar eru í mílum en ekki kílómetrum. Það vandast því málið að [...]
![[MP3] The Specific Heats](http://cdn.elbo.ws/posts/1161726_lg.jpg)
Fólk er alveg sultuslakt á Besties getrauninni, giskar ekki einu sinni á Gullfoss, þótt með fylgi mynd af bandinu við það að stökkva í fossinn. Enda ekki margir sem þekkja The Besties og vita ekki til hvers er að vinna. Það má hinsvegar upplýsa að staðurinn er á Snæfellsnesi og honum fylgir sú hjátrú að óskir manns rætist ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Vinningurinn er ekki af verri endanum enda eru 7" smáskífur nú hipp og kúl, og þessi er þar að auki grá á litinn. Núna er hinsvegar ljómandi fallegur sunnudagur, með tilheyrandi skýjafari, kulda og [...]
![[MP3] The Besties - getraun](http://cdn.elbo.ws/posts/1160258_lg.jpg)
Bandaríska tweepopp sveitin The Besties rak á land hér á Íslandi seinasta sumar, og spiluðu þau bæði á Paddy's í Keflavík og Organ í Reykjavík. Þeim til halds og trausts voru Hellvar, Vicky Pollard, Dýrðin, Jan Mayen og Foreign Monkeys. Þessi ágæta sveit var upphaflega tríó og þau notuðu skemmtilegan trommuheila sem var kallaður Shitkicker, en seinna bættist trommuleikarinn Frank Korn við og þannig skipuð léku þau hér, úttauguð eftir túr um Bretland og Svíþjóð, og Frank fárveikur. Það stoppaði þau ekki í að spila kick ass gigg og ferðast vítt og breytt um landið. Fyrsta breiðskífan [...]
![[MP3] Godflesh](http://cdn.elbo.ws/posts/1154653_lg.jpg)
Eflaust hefur auglýsingaherferð Vodafone, Skítt með kerfið, ekki farið framhjá mörgum, en þar er gert út á ímynd pönksins. Lítt áberandi smáatriði í heilsíðuauglýsingu Vodafone manna er hinsvegar barmmerki með orðinu Godflesh. Godflesh var hinsvegar, eins og allir vita, ekki pönkhljómsveit heldur lék hún "industrial metal". Ég átti mitt industrial metal tímabil á yngri árum og eignaðist þá plötur með Ministry, Skinny Puppy og plötuna Streetcleaner með Godflesh, sem einstaka sinnum ratar á fóninn hjá mér enn. Godflesh var stofnuð árið 1988 af fyrrum meðlim Napalm Death, Justin nokkrum Broadrick. Sveitin var undir áhrifum [...]
![[MP3] Vivian Girls](http://cdn.elbo.ws/posts/1154654_lg.jpg)
Vivian Girls eru frá Brooklyn og gáfu nýlega út fyrstu breiðskífu sína, sem heitir einfaldlega Vivian Girls. Platan sú seldist upp svo að segja strax, en hún var víst prentuð í frekar takmörkuðu upplagi. Hugsanlega nógu takmörkuðu til að vinir og ættingjar hafi hreinlega keypt það upp, en bloggarar hvarvetna halda vart vatni yfir snilldinni. Ég er ekki búinn að spræna á mig ennþá, en ansi oft þegar ég rekst á eitthvað um annað band sem ég held mjög uppá (pains of being pure at heart), þá er eitthvað verið að skrifa um þetta band í nánu [...]
Planningtorock er ekkert sérstaklega mikið að plana það að rokka. Það verður líklegast ekki snefill af rokki á tónleikum Planningtorock satt að segja. "More like Planning to suck" stóð á einu bloggi. Mér virðist að tónleikar hennar séu mikið sjónarspil, meira gjörningur heldur en eiginlegir tónleikar. Hérna er smá umfjöllun um hina ungu og mjög svo efnilegu listakonu Janine Rostron sem er allt í öllu í þessari hljómsveit. Þessi orð voru höfð um listakonuna á öðru bloggi, mér þykir sjálfsagt að vitna í þau: "With a laptop as her backing [...]
![[MP3] Thrushes](http://cdn.elbo.ws/posts/1148678_lg.jpg)
Thrushes frá Baltimore eru nýja uppáhaldið mitt. Þau spila kraftmikið Shoegaze af bestu gerð og hafa verið að vekja athygli þar ytra m.a. með því að hita upp fyrir The Raveonettes. Fyrsta platan þeirra, Sun Come Undone, kom út í fyrra og eftir 4 daga verður gripurinn gefinn út á vínyl, enda er það hipp og kúl núna. Tékkum á nokkrum lögum og hækkum í botn! [MP3] Thrushes - Flying [MP3] Thrushes - Aidan Quinn [MP3] Thrushes - Into the Woods Og vídeó við lagið "Heartbeats": [...]
Yelle virðist við fyrstu athugun vera einhverskonar tískufyrirbæri. Hugsanlega ilmvatn. Eða nýtt tímarit í stíl við Elle. Svo kemur upp úr kafinu að þetta er frönsk söngkona sem skýrir hvað þetta er að gera á Iceland Airwaves, en reyndar er líka til kanadískur hokký leikmaður sem heitir Stephane Yelle. Stúlkan hefur átt m.a. lag í tölvuleiknum Need for Speed ("À cause des Garçons"). Ég er eitthvað að reyna að klóra mig út úr wikipedia síðunni um hana, hún er fædd 1983 og virðist hafa búið til lög með sömplum úr öðrum lögum, og svo hafa aðrir [...]
Að embedda Youtube vídeóum er góð skemmtun. Þá semsagt tekur maður Youtube vídeó og birtir það á annari vefsíðu. Til þess þarf einungis að afrita svokallaðan "embed code" og setja inn á síðuna sína. Hér að neðan eru einmitt dæmi um "embedduð" vídeó. Oft á tíðum er hægt að velja um það að skoða Youtube vídeó í hærri gæðum, og það á yfirleitt við um tiltölulega nýleg myndbönd. Hinsvegar, ef myndbandið er "embeddað" þá birtist það alltaf í standard (lélegum) gæðum, og getur það verið nokkuð fúlt. HINSVEGAR, þá rakst ég nýlega á smá [...]
The Greencoats eru frá Gautaborg í Svíþjóð, og spila skemmtilega samsuðu af sixties og shoegaze. Síðarnefndu áhrifin eru mun fyrirferðarmeiri í laginu sem hér er boðið uppá, meðan sixties áhrifin eru afar greinilega í lögum á Myspace síðu sveitarinnar. Forsprakki sveitarinnar, Ramo Spatalovic, segist undir áhrifum frá Jess Franco, Soledad Miranda & Jean Rollin , sem ég hef nú ekki grun um hver eru, kannski kveikir á perunni hjá einhverjum. Lagið "Honey" er allavegana ekki af verri endanum. Ég er þó ekkert sérstaklega viss um að þetta lifi lengi með manni. Fínn hávaði engu að síður. [...]
Hávaðakrúttin með langa nafnið, The Pains of Being Pure at Heart, voru rétt í þessu að kynna til sögunnar demó af nýju lagi, "Gothenberg Handshake". Væntanlega verður þetta sama lag í endanlegri mynd á fyrstu breiðskífu sveitarinnar sem er væntanleg innan skamms, og Þegar maður hefur sætt sig við að laginu er ekki drekkt í hnausþykku distortion eins og flest önnur lög frá þeim, þá hljómar þetta demó ekki ósvipað gömlu efni með The Cure, sem er að sjálfsögðu alveg ljómandi gott. Þau eru einmitt á leiðinni til Svíþjóðar í september og spila þá eflaust í mekka [...]
Florence Mary Leontine Welsh er 21 árs gömul stúlkukind sem kemur fram undir nafninu Florence and The Machine. Hún er gjarnan ein á sviði eða með félaga sem leikur undir á gítar sem er þá líklegast The Machine í þessu sambandi. Hún hefur gjarnan verið nefnd í sömu andrá og Kate Nash, Lily Allen og vinkona okkar Amy Winehouse, bara meira Indie. Ég hef reyndar aldrei heyrt í neinni þeirra svo ég get ekki dæmt um það, en sjálf segir hún um tónlistina sína: "the kind of music Lily or Kate would make if they'd grown up [...]
Fyrst maður er á annað borð kominn til Brasilíu, þá er ekki úr vegi að kíkja aðeins til borgarinnar Recife í norð-austurhluta landsins og heimsækja hljómsveitina Radio de Outono. Nafnið ku þýða Útvarp Haustins, eða eitthvað í þá áttina. Tónlistin er popprokk undir áhrifum frá stefnum sem kallast Jovem Guarda sem ku vera brasilísk tónlistarstefna sem fór mikinn á seinni hluta sjötta áratugarins og einkennist af barnalegum textum og tyggjókúlumelódíum, er mér sagt. Tyggjópopp er allavegana akkúrat rétta orðið yfir tónlist Radio de Outono. Þau hafa gefið út samnefnda EP plötu og tvær demó útgáfur, og voru [...]
CSS er þekkt fyrirbæri í vefsmíði, og stendur fyrir Cascading Style Sheets. Tölvunördinn ég hélt að það væri nafn sveitarinnar enda ekki vitlaust nafn á bandi þannig lagað. En CSS stendur hérna fyrir Cansei de ser Sexy, sem mun vera brasilíska fyrir "þreytt á að vera sexý" en frasinn mun gripinn glóðvolgur úr munúðarfullum munni söngkonunnar Beyonce á vondum degi. Cansei de ser Sexy eru semsagt frá Brasilíu og spila .. uh... ögrandi og munúðarfullt electró-dans-indie. Engin furða að ég hafi aldrei heyrt í þeim fyrr. Bandið var stofnað 2003 og önnur plata þeirra er væntanleg á [...]
PNAU eru tveir sjóðheitir gaurar frá Sidney í Ástralíu sem spila sjóðheita danstónlist. Fyrsta platan þeirra, Sambanova, kom út 1999 svo þeir eru engir nýgræðingar í bransanum. Lagið "With you forever" minnir mig á Motion Boys, meðan önnur lög eiga sitthvað sameiginlegt með t.d. Daft Punk, nú eða löndum þeirra Cut Copy. Sjóðheitt og sveitt alveg. [MP3] PNAU - With you forever [MP3] PNAU - Baby [MP3] PNAU - We have tomorrow [MP3] PNAU - Wild strawberries [...]
Ég hef alltaf verið veikur fyrir sixties tónlist, bæði British Invasion böndunum bresku, sem og amerískum ruslatunnubílskúrsrokksveitu m frá sama tíma, sem voru einskonar villtari útgáfur af bresku sveitunum. Meðan bretarnir sungu ástarsöngva þá voru kanarnir meira trash og sungu gjarnan um skrýmsli ýmiskonar, nornir, uppvakninga og geðveilur. Kanarnir virðast líka hafa kunnað minna á hljóðfærin sín og verið meira sama um það. Það var því mikið ánægjuefni að rekast á safnplötuna Rockabilly Psychosis & the Garage Disease sem safnar saman lögum úr ruslatunnu geiranum beggja vegna atlantsála, margt af þessu vel þekkt lög og einhver þeirra með [...]
Young Knives hófu feril sinn undir heitinu Simple Pastoral Existence í smábænum Ashby-de-la-Zouch í Leicesterhire árið 1997. Þeim varð eitthvað lítið ágengt með því nafni, en náðu hylli almennings sem Young Knives á Truck Festival árið 2002. Þá fóru plöturnar að rúlla út, sumar þeirra unnar með Andy Gill, forsprakka hinnar virtu spasmapönksveitar Gang of Four, en sú sveit ku einnig hafa haft áhrif á Young Knives til að byrja með. Þeir hafa síðan verið að hita upp fyrir allskonar merkismenn s.s. Kaiser Chiefs, og önnur breiðskífan, Superabundance, leit dagsins ljós í mars á þessu [...]
Fyrst ég gubbaði því útúr mér að These New Puritans minntu mig á The Fall, þá er nú ekki úr vegi að grafa eitthvað upp með þeirri eðal sveit. [MP3] The Fall - How I Wrote Elastic Man [MP3] The Fall - Lie Dream of a Casino Soul [MP3] The Fall - Van Plague Forsprakki sveitarinnar, Mark E. Smith, er núna 51 árs gamall, en lítur út fyrir að vera svona áttræður að minnsta kosti. The Fall var stofnuð 1976 og er enn að.Fyrsta platan þeirra [...]
"... a quartet of art brats from Southend-on-Sea" segir í Rolling Stone Magazine. Þetta lið hefur verið að túra með Crystal Castles og Klaxons svo eitthvað sé nefnt. Mér finnst gaurinn syngja eins og Mark E. Smith úr The Fall, sem er gott, en sjálf segjast þau svo vera undir áhrifum frá Wu-Tang Clan, sem er öllu verra. These New Puritans eru allavegana að meika það með fyrstu plötunni sinni, Beat Pyramid, sem kom út fyrr á árinu, en fyrsti singullinn þeirra leit dagsins ljós árið 2006. Gaurarnir tveir vinstra megin á myndinni eru tvíburar. [...]
Smá klassík til að hressa upp á þennan fúla fimmtudag! Mæli sérdeilis mikið með "Silver Rocket". [MP3] Sonic Youth - Theresa's Sound World [MP3] Sonic Youth - Shadow of a Doubt [MP3] Sonic Youth - Dirty Boots [MP3] Sonic Youth - Teenage Riot [MP3] Sonic Youth - Silver Rocket [MP3] Sonic Youth - The Sprawl Ef þið eruð í geðveiku stuði þá getið þið sótt Deluxe Edition af Daydream Nation hér .