Blog: Rjominn

Nýtt óútgefið efni frá múm

Nýtt óútgefið efni frá múm Hljómsveitina múm þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum en þessi ágæta sveit hefur nú sent frá sér nýja plötu með áður óútgefnu efni. Platan, sem inniheldur 15 óútgefin lög frá árunum 1998-2000, hefur hlotið nafnið Early Birds og fæst hún í forsölu eingöngu á gogoyoko fram til 1. júní. Hér er sannarlega um hvalreka á strendur tónlistarunnenda að ræða. Related posts: Ólöf Arnalds með nýtt efni Óútgefið [...]

Ný plata frá Múgsefjun

Ný plata frá Múgsefjun Væntanleg er í almenna netsölu þann 1. júní næstkomandi samnefnd önnur plata Múgsefjunar . Sama dag verður einnig opnað fyrir forsölu geisladisksins á vefsíðu sveitarinnar, www.mugsefjun.is Gangi allt að óskum mun platan rata í plötubúðir þann 11. júní. Múgsefjun mun halda útgáfutónleika sína í fríkirkjunni en þeir verða auglýstir nánar síðar. Fylgist spennt með. Related posts: Ný lög og plata væntanleg frá Benna Hemm Hemm Nýjasta plata Hvanndalsbræðra kemur út á [...]

Rauðasandur Festival 6 – 8. júlí

Rauðasandur Festival 6 – 8. júlí Rauðasandur Festival er lítil tónlistarhátíð í náttúruperlunni Rauðasandi á Vestfjörðum. Á hátíðinni verður áherslu lögð á kántrý, blús, fólk og aðra órafmagnaða tónlist. Gestir eru á tjaldsvæði og tónleikarnir eru í gamalli hlöðu á bænum Melanesi. Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru Lay Low, Prinspóló, Snorri Helga, Myrra Rós, Low Roar og Lovely Lion. Það er margt fleira að gerast en tónleikarnir t.d. brenna, yoga á sandinum, sandkastalakeppni, göngu- og bátsferðir (selirnir liggja þarna í hrúgum) og allskonar leikir og fjör. Ætlunin er að þetta sé litla [...]

Dias

Dias Hljómsveitinni Dias, sem bar sigur úr bítum í keppninni Sumar í Sýrland hérna um árið og lenti einnig í 3. sæti í Remix Keppni Blaz Roca , var að gefa út nýtt, eldhresst lag sem heitir Girls". Af því að Dias hefur ekki fengið inni á Rjómanum áður er annað ekki hægt en að skella eins og einu lagi til viðbótar með. Hér að neðan hljómar því eitt af eldri lögum sveitarinnar, lagið If you." Related posts: [...]

Euro Hákon

Euro Hákon Eurovisjón unnandinn Stafrænn Hákon gaf í gær út stuttskífu þar sem hann fer mjúkum höndum um þrjú uppáhalds Evróvisjón-lögin sín. Þeirra á meðal er hinn yndislegi friðaróður Ein Bisschen Frieden" sem hin 17 ára Nicole sigraði keppnina með árið 1982 og hið magnaða lag Fly on the wings of love" sem Olsen Bræður brennimerktu í vitund okkar um síðustu aldamót. Related posts: Stafrænn Hákon Stafrænn Hákon semur við Kimi Records [...]

Retro Stefson gefur út 7 tommu

Retro Stefson gefur út 7 tommu Stuðbandið Retro Stefson sendi í gær frá sér 7 tommu vínyl plötu með laginu Qween" og á b-hlið plötunnar er að finna remix af laginu eftir Hermigervil . Lagið Qween hefur verið geysivinsælt hér á landi síðan það kom út í blálok síðasta árs og hefur sveitin verið afar áberandi m.a. í nýrri auglýsingaherferð Vodafone. Retro Stefson hafa verið í hljóðveri undanfarið við upptökur á nýrri breiðskífu sem er áætlað að komi út í lok sumars en þangað til verðum við að láta þessa 7 tommu nægja af nýju efni frá Retro Stefson. Platan er [...]

Tónleikahald helgarinnar

Tónleikahald helgarinnar Það er nóg um að vera fyrir tónlistarunnendur um hvítasunnuhelgina og var Rjóminn beðinn um að koma upplýsingum um eftirfarandi tónleikahald á framfæri: UN Women styrktartónleikar gogoyoko gogoyoko heldur UN Women styrktartónleikar á Gauknum í kvöld föstudagskvöldið 25. maí. Fram koma Mammút, Tilbury, Snorri Helgason, Elín Ey, Muck og Christopher Wyatt-Scott sem öll gefa vinnu sína þetta kvöld til stuðnings UN Women. Tónleikarnir hefjast kl 22:00 og það kostar litlar 1000 kr inn. Útidúr á Faktorý Hljómsveitin Útidúr [...]

Kontinuum gera samning við Candlelight Records

Kontinuum gera samning við Candlelight Records Íslenska trega-rokk sveitin Kontinuum hefur skrifað undir plötusamning við hið fornfræga þungarokks útgáfufyrirtæki Candlelight Records sem hefur gefið út marga áhrifaríka listamenn þungarokksins s.s Opeth , Emperor , Killing Joke og nú Orange Goblin , Fear Factory ofl. Sveitina skipa Birgir Már Þorgeirsson, Ingi Þór Pálsson, Engilbert Hauksson og Kristján Heiðarsson. Meðlimir sveitarinnar eru ekki nýgræðingar í öfgarokki, þeir eru bendlaðir við sveitirnar Potentiam , Dark Harvest , I Adapt og Ask the Slave . Von er á fyrstu plötu sveitarinnar Earth Blood [...]

Sin Fang á gogoyoko wireless

Sin Fang á gogoyoko wireless Hér að neðan eru tvö myndbönd af tónleikum Sin Fang á gogoyoko wireless tónleikaröðinni þann 11. maí síðastliðinn en þar sem sveitin flutti tvö lög af nýútkominn EP plötu sinni Half Dreams . Sin Fang - Only Eyes Sin Fang - Walk With You Related posts: Nýtt lag með Sin Fang Nýtt frá Sin Fang [...]

Edward Sharpe and The Magnetic Zeros – Here

Edward Sharpe and The Magnetic Zeros – Here Eitt það áhugaverðasta sem borist hefur mér til eyrna nýverið erlendis frá er nýja platan frá nýaldarhippagenginu í sveitinni Edward Sharpe and The Magnetic Zeros . Á henni hefur þessum hárfagra og skeggjaða hóp tekist á einstakan hátt að hræra saman hinum ýmsu stefnum og straumum í afar bragðmikla tónasúpu sem, eins og allar góðar súpur, bragðast ávallt betur þegar hún er hituð upp daginn eftir (myndlíkingin er kannski orðin frekar óljós en ég held flestir viti hvað ég meina). Platan mun koma formlega út núna eftir helgi en hana má þó heyra í heild sinni hér [...]

Ólafur Arnalds & Nils Frahm – Stare

Ólafur Arnalds & Nils Frahm – Stare Stare er samstarfsverkefni þeirra Ólafs Arnalds og Berlínarbúans Nils Frahm þar sem tveir ólíkir hljóðheimar (hinn klassíski og sá rafræni) mætast og mynda sterka heild. Með þeim á plötunni kemur fram sellóleikarinn Anne Müller . Platan er gefin út af tilefni Record Store Day sem haldinn var þann 21.apríl síðastliðinn og fimm ára afmælis Erased Tapes útgáfunnar sem gefur plötuna út. Related posts: Ólafur Arnalds í Havarí Ólafur Arnalds : Living Room Songs [...]

Melchior gefur út Mat fyrir tvo

Melchior gefur út Mat fyrir tvo Matur fyrir tvo er tónlistarlegt framhald plötunnar Melchior , sem kom út árið 2009. Kammerpoppið hefur hér verið þróað enn fremur og útkoman er fjölbreytni, ferskur stíll og sterk heild. Melchior gefur plötuna út en Kongó dreifir. Matur fyrir tvo er þegar komin í rafræna sölu á gogoyoko . Related posts: Melchior sendir frá sér Jólasmell Myrra Rós gefur út Kveldúlf Eldberg gefur út sína fyrstu [...]

Pop Kings – The Master Pop

Pop Kings – The Master Pop Ching Ching Bling Bling gengið hefur partíað mikið í gegnum árin með Pop Kings plötuna hans Dr. Gunna á fóninum, sem útgáfan hans Erðanúmúsik gaf út árið 2000. Þetta meistaraverk var gefið út í takmörkuðu upplagi á sínum tíma í 100 tölusettum eintökum en hefur einnig verið fáanlegt frítt til niðurhals á síðu Dr. Gunna. CCBB fannst tími til kominn að hróður plötunnar bærist víðar og fékk leyfi til að dreifa henni stafrænt til fólks áfram. Hún er nú þegar í boði sem ókeypis niðurhal á heimasíðu Ching Ching Bling Bling og verið er [...]

Urban Lumber

Urban Lumber Urban Lumber er glænýtt íslenskt trip-hop band sem fengið hefur góðar undirtektir undanfarið. Sveitina skipa þau Kristján Haraldsson (gítar, söngur), Björg Ólöf Þráinsdóttir (söngur), Kjartan B. Heiðberg (bassi) og Þór Ólafsson (forritun, sömpl). Meðfylgjandi er þeirra fyrsta lag en það ber titilinn Tease Your Mind". Related posts: Kiriyama Family - Sneaky Boots Músítilraunir 2012 : fyrsti hluti Nýtt lag með Bob Dean

Nýtt lag frá 1860

Nýtt lag frá 1860 Ljúflingarnir í 1860 sendu í gær frá sér nýtt lag af væntanlegri breiðskífu sem áætlað er að komi út í haust. Lagið heitir Go Forth" og hljómar hér að neðan í allri sinni angurværu dýrð. Related posts: Youtube meik 1860 Nýtt lag frá Þóri Georg Snæfellsnes með 1860

Styrktartónleikar The Wicked Strangers

Styrktartónleikar The Wicked Strangers Þann 28. maí munu The Wicked Strangers halda til ameríku þar sem að þeir munu spila á um 20 tónleikum á tveimur vikum. Eftir að hafa kynnst manni að nafni Eric á Airwaves í fyrra ákvað sveitin að skella sér til Ameríku þegar umræddur Eric bauðst til að skipuleggja fyrir þá túr um Ameríkuna. Hlotnaðist þeim síðan sá heiður að Loftbrú Icelandair ákvað að styrkja þá og mun sveitin nú halda út og keyra rúmlega 3000 kílómetra um suðurríkinn og vesturströnd bandaríkjana með viðkomu á mörgum stöðum, líkt og Kansas, Austin, Los Angeles en enda för sína í [...]

Black Valentine

Black Valentine Sóló listamaðurinn Black Valentine gaf út stafræna plötu fyrir nokkru og heitir hún Polygamy Is Alright By Me . Áður hafa komið út Sex on the Beach (2010) og Rehab is for Quitters (2009). Hér er sem fyrr um að ræða lo-fi synthaskotið brimbrettapopp framreitt af Pétri Úlfi Einarssyni sem tónlistarunnendur ættu að kannast við sem meðlim sveita eins og Pornopop , IKEA SATAN ofl. Allar plötur Black Valentine eru fríar til niðurhals fyrir gesti og gangandi á Bandcamp síðu listamannsins. [...]

Love Is What Makes This World Go Around með Enkídú

Love Is What Makes This World Go Around með Enkídú Synthadelia Records kynnir nýja rafræna EP útgáfu með Enkídú sem er annað sjálf Þórðar Hermannssonar . Platan heitir Love Is What Makes This World Go Around og er 4 laga electro plata. Platan er tilraunakennd blanda af elektró með diskó ívafi þar sem Þórður leikur sér að töktum og niðurskornum hljóðbútum og blandar þeim saman á skemmtilegan hátt. Plötuna má nálgast á iTunes , Tónlist.is og gogoyoko . Related posts: Asonat gefur út Love in [...]

Minningartónleikar um Kristján Eldjárn gítarleikara

Minningartónleikar um Kristján Eldjárn gítarleikara Fimmtudaginn 7. júní nk. heldur Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns gítarleikara tónleika í Háskólabíói til að minnast þess að tíu ár eru liðin síðan Kristján lést og eins þess að í sumar hefði hann orðið fertugur. Fjöldi flytjenda kemur þar fram, meðal annars Bubbi Morthens, Páll Óskar, Ham, Víkingur Heiðar, Ragnhildur Gísladóttir, Jack Magnet, Sykur, Kristjana Arngrímsdóttir, Guðmundur Pétursson, Jóel Pálsson, Einar Scheving, Ari Eldjárn og Eva María Jónsdóttir. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og rennur allur ágóði af tónleikunum í minningarsjóðinn. Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns gítarleikara var stofnaður 2002 af fjölskyldu [...]

Mikael Lind gefur út plötuna Felines everywhere

Mikael Lind gefur út plötuna Felines everywhere Sænski tónlistarmaðurinn og málfræðingurinn Mikael Lind hefur verið búsettur á Íslandi síðan 2006. Hann gaf út plötuna Alltihop árið 2009 og spilaði á Iceland Airwaves sama ár. Núna er Mikael kominn með nýja plötu er heitir Felines everywhere og sér hann sjálfur um dreifingu á henni. Á plötunni sameinast allskyns frumleg rafhljóð við lifandi hljóðfæri eins og fiðlur, píanó, klukkuspil, trommur o.fl. Tónlistarmennirnir Paul Evans , Frank Aarnink og Hallgrímur Jón Hallgrímsson aðstoðuðu Mikael með hljóðfæraleik en Mikael sá sjálfur um hljóðblöndun og hljóðjöfnun. Myndlistarmaðurinn [...]
Page   1 2 3 4 5 6 7 8 ... Next >
Location: Reykjavik, Iceland