
Úsland er sjálfstæð hljóðverka útgáfa sem sérhæfir sig í spuna og tilraunum í tónlist. Markmið útgáfunnar er að koma saman fólki sem ekki hefur áður skapað saman tónlist og gefa þeim frjálsan vetvang til að kanna nýjar slóðir í sameiningu. Skapalón Úslands er þannig að listamenn eru leitaðir uppi og boðið að taka þátt í tilraunum í tónlist í hljóðveri útgáfunnar. Þar verja þeir kvöldstund/eftirmiðdegi/morg ni og tilraunir þeirra festar á hljóðrit. Ekkert er átt við hljóðritið eftir upptöku og er það gefið út á internetinu strax í kjölfarið gegn vægu gjaldi. Ein hljómplata er gefin út á mánuði í 12 [...]

Samnefnd fyrsta plata hljómsveitarinnar Robert the Roommate kom út nýverið. Platan var hljóðrituð í Stúdíó Sýrlandi, í október 2012. Um hljóðritun og hljóðblöndun sá Bjarni Þór Jensson en hljóðjöfnun var í höndum Hafþórs Karlssonar . Sérstakur gestur á plötunni er Elvar Örn Friðriksson . Öll lögin á plötunni eru frumsamin og má helst lýsa tónlistinni sem þjóðlagaskotinni popp og rokktónlist, með áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin og Fleet Foxes . Hljómsveitin var stofnum vorið 2010, fyrst með það í huga að spila saman tónlist eftir gömlu og góðu [...]
Miðvikudagur 3. apríl Rósenberg - Dætrasynir - 1500 kr. - F KEX Hostel - Grúska Babúska útgáfutónleikar, Mikael Lind - 1500 kr. - F Fimmtudagur 4. apríl Paddy's Keflavík - Paddy's Forever 1. kvöld - Oddur, Hellvar, Tommygun Preachers, Valdimar - Frítt - F Faktorý - Agent Fresco, Kiriyama Family - 1500 kr - F Volta - Legend, Muck, Japam - 1000 kr - voltareykjavik.is Dillon - Kjurr, [...]
27. mars - Dillon- Brain Police - Frítt - F 27. mars - Faktorý - Jónas Sigurðsson, Prins Póló, Sin Fang, Borko - 2000 kr. - Midi.is 27. mars - Gaukur á Stöng - Eflum íslenskt tónlistarlíf! - NOISE, Morgan Kane, Sushi Submarine, Morning after Youth, Casio Fatso, The Wicked Stranger - F 28. mars - Gaukur á Stöng - Styrktartónleikar Páls Sverrissonar, Sniglabandið - F 28. mars - Volta - Stephen Steinbrink (US), Snorri Helgason, Just another Snake Cult - 500 - [...]

Úrslitakvöld Músiktilrauna fór fram í gærkveldi og voru úrslit þessi: Vök In The Company of Men Aragrúi Hljómsveit Fólksins: Yellow Void Einstaklingsverðlaun: Gítarleikari Músíktilrauna: Hafsteinn Þráinsson / CeaseTone Bassaleikari Músíktilrauna: Guðmundur Ingi Halldórsson / Sjálfsprottin Spévísi Píanóleikari Músíktilrauna: Ívar Hannes Pétursson / Elgar Trommuleikari Músíktilrauna: Björn Emil Rúnarsson / In The Company of Men Söngvari Músíktilrauna: [...]

Út er komið glænýtt lag frá hljómsveitinni Mammút . Verða þetta að teljast gleðifréttir fyrir aðdáendur sveitarinnar enda biðin orðin löng síðan síðasta plata Mammút, Karkari , kom út 2008. Vinnsla við nýju plötuna er á lokastigum og mun hún koma út einhverntímann á árinu. Reikna má með að útgáfan verði með glæsilegasta móti og mun platan t.a.m. fást bæði á ensku og íslensku. Tengfar færslur: Mammút rímixuð Nýtt íslenskt : FM [...]

Fyrr í dag lét nýtt lag frá Sigur Rós , ásamt myndbandi, dagsins ljós. Heitir það Brennisteinn" og er að finna á vætanlegri plötu sveitarinnar sem heita mun Kveikur og kemur út um allan heim 17. og 18. júní næstkomandi. Tengfar færslur: Sigur Rós - Inni Sigur Rós - Ekki múkk Sigur Rós Valtari Hour" kl. 19 í dag

Lagið Train of Faith" er tekið af plötunni Knee deep sem kemur út núna í Apríl og er önnur sólóplata tónlistarmannsinns Rúnars Eff . Í tilefni af komandi plötu verður svo risa tónleikum slegið upp í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 20.Apríl kl: 21.00. 10 manna hljómsveit skipuð mörgum af okkar fremstu tónlistarmönnum mun sjá um undirleikinn, og eins verður 15 manna kór þeim til aðstoðar í nokkrum lögum. Auka ljósabúnaði verður einnig bætt í húsið til að gera kvöldið sem glæsilegast. Sérstakir gestir á tónleikunum verða söngvararnir Jógvan Hansen , Vignir Snær [...]

Í gærkveldi fór fram fjórða og síðasta undankvöld Músiktilrauna. Salurinn valdi að þessu sinni hljómsveitina Kaleo í úrslit og dómnefnd valdi For Colourblind People . Að auki var tilkynnt að dómnefnd hefði nýtt sér rétt sinn að velja 3 hljómsveitir að auki áfram í úrslit. Það voru hljómveitirnar Aragrúi , Kjurr og Skerðing . Þá er ljóst að 11 atriði munu keppa til úrslita á laugardaginn næsta, 23.mars, en úrslitin verða haldin á sama stað, Silfurbergi, Hörpu. Dagskráin hefst kl.17 og verður einnig útvarpað á Rás 2. Miðasala á [...]
Tónleikadagskrá helgarinnar er að lænast upp eins og sagt er á góðri íslensku. Eins og áður viljum við gjarnan fá ábendingar um fleiri tónleika. Tenglar á nánari upplýsingar fylgja með ef við á, en í stað þess að skrifa hundrað sinnum Facebook" þá er Facebook tengill hér eftir auðkenndur með F". 21. mars - Rósenberg - Hymnalaya, Júlíus Meyvant - 1500 kr. - F 21. mars - Faktorý - Kjurr, Camp Keighley - Frítt - F 21. mars - Dillon - Vintage Caravan - Frítt - F [...]

Þriðja undankvöld Músíktilrauna 2013 fór fram í Silfurbergi, Hörpunni í gærkveldi. Níu tónlistaratriði tóku þátt og var fjölbreytnin mikil; allt frá rappi yfir í harðkjarna rokk. En að lokum fór svo að salur valdi hljómsveitina Yellow Void áfram til úrslita og dómnefnd valdi In The Company of Men . Dómnefnd hefur möguleika á að velja 1 til 4 sveitir áfram aukalega í úrslit að öllum undankvöldum loknum, ef ástæða þykir til. Það yrði tilkynnt á morgun, fimmtudag. Fjórða og síðasta undankvöldið fer svo fram í kvöld, 20.mars og hefst stundvíslega kl.19:30. Miðasala er á [...]

Fyrsta útgáfa ársins 2013 hjá Bedroom Community er platan Baroque eftir víóluleikarann Nadiu Sirota . Sirota er alls ekki ókunn Bedroom Community, en hún hefur spilað inn á fjölmargar plötur útgáfunnar ásamt því að spila reglulega með listamönnum hennar á tónleikum og fylgja þeim á tónleikaferðir. Tónverkin sex á Baroque eiga það öll sameiginleg að vera skrifuð fyrir Sirota af ungum tónskáldum sem hafa verið dugleg að ryðja sér til rúms undanfarin ár. Þrjú þeirra eru á mála hjá Bedroom Community; þeir Nico Muhly , Daníel Bjarnason [...]

Þann 24. mars næst komandi mun hljómsveitin Nóra blása til útgáfutónleika í Tjarnabíói í tilefni af útkomu annarrar breiðskífu sinnar, Himinbrim , sem kom út skömmu fyrir jól. Á tónleikunum verður öllu tjaldað til og mun sveitin fá til liðs við sig strengjakvartett og slagverksleikara til að koma plötunni í heild sinni sem best til skila. Um upphitun sér tónlistarmaðurinn Jara en hún mun flytja lög af plötu sinni sem kemur út í næsta mánuði. Húsið opnar kl. 20:00 en tónleikar hefjast kl. 20:30. Miðinn kostar 1900 kr. og ferð miðasala fram [...]

Út er komið glænýtt lag frá grímuklædda tónlistarmanninum Gabríel. Nefnist það Gimsteinar" en þeir Krummi Björgvinsson og Opee sjá um raddirnar að þessu sinni. Þetta er fjórða lagið sem Gabríel sendir frá sér, en áður hefur hann gefið út lögin Stjörnuhröp", Sólskin" og Gleymmérei". Veglegt myndband verður gert við lagið en framleiðslan á því verður í höndum SNARK Films, sem einnig framleiddu myndbandið við Gleymmérei", en áætlað er að frumsýna myndbandið um miðjan næsta mánuð. Gabríel - Gimsteinar Gabríel - Gimsteinar [...]

Öðru undankvöldi Músiktilrauna er nú lokið í Hörpunni. Dómnefnd valdi áfram í úrslit tónlistarmanninn CeaseTone og salurinn kaus sveitina Glundroða . Á vef tilraunanna, www.musiktilraunir.is , er hægt að nálgast allar upplýsingar, skoða myndir og hlusta á tóndæmi allra þátttakenda í ár. Þriðja undankvöld tilraunanna er í kvöld, þriðjudaginn 19.mars í Silfurbergi, Hörpu og hefst stundvíslega kl. 19:30. Miðasala er á Harpa.is og Midi.is [...]

Ný tónleikasería mun fara fram í hinum nýopnaða og stórglæsilega Stúdentakjallara sem staðsettur er á Háskólatorgi. Frítt verður inn á alla tónleika í röðinni í boði Polar Beer og Nova. Á þessu fyrsta kvöldi tónleikaraðarinnar er það hljómsveitin Oyama sem hefur leika, en sveitin hefur verið á mikilli siglingu undanfarið eða allar götur síðan hún gaf út EP-plötuna I Wanna í lok janúar sl. Oyama snéru nýverið heim úr afar vel heppnuðu tónleikaferðalagi í Noregi og Englandi þar sem þau léku m.a. á ByLarm hátíðinni í Olsó og á hinum þekkta tónleikastað Koko [...]

Hljómsveitin Útidúr leggur nú lokahönd á nýja plötu sem nefnist Detour og er áætlað að hún komi út 15. apríl næstkomandi. Sveitin byrjuði að vinna í plötunni fyrir um tveimur árum síðan og ætti því að vera spennandi að heyra útkomuna en margt hefur breyst á þessum tíma, til að mynda mannabreytingar innan sveitarinnar sem skila sér í breyttum hljóm sem er að mörgu leiti rafmagnaðri og líflegri en áður. Detour inniheldur sjö lög og má heyra eitt þeirra, lagið Vultures", hér að neðan. Detour verður gefin [...]

1.undankvöldi er nú lokið í Silfurbergi, Hörpunni, í Músíktilraunum 2013. Dómnefnd valdi áfram í úrslit hljómsveitina Hide Your Kids og salurinn kaus tvíeykið Vök . Kvöldið gekk vonum framar og var frábær skemmtun en Músíktilraunir minna um leið á að dómnefnd hefur síðan möguleika á að velja áfram aukalega 1-4 atriði að öllum undankvöldum loknum. Engar tengdar færslur.
Listamaðurinn HEK var að gefa út nýtt lag og myndband. Lagið heitir Tina" og var tekið upp af Björgvini Gíslasyni en hann spilaði einnig á rafmagnsgítar, píanó og hljómborð. Þórdís Claessen slær bassann, Eyþór Østerby gælir við kassagítarinn og María Einarsdóttir sér um bakraddir. HEK samdi lag og texta en myndbandið gerði Magnús Unnar . Tengfar færslur: Magnús Leifur Nýtt vídeó frá Stina August [...]
Heiða Eiríks , ef einhver vissi það ekki, er forsprakki hljómsveitarinnar Hellvar ásamt unnusta sínum Elvari. Þó þekkja kannski einhverjir Heiðu sem Heiðu í Unun" þótt langt sé um liðið síðan Unun var og hét. Hellvar átti að mati undirritaðs eina af betri plötum ársins 2011, Stop that Noise , og er líka með eindæmum öflugt tónleikaband. Gítarhávaðinn sem þau framleiddu seinast þegar ég sá þau, á Gauknum fyrir tveimur vikum, var slíkur að hárið fauk nærri af tónleikagestum, enda fjórir gítarar í gangi í einu, hver að keppast um að yfirgnæfa hina. Heiða varð við ósk okkar um [...]