Ég var bara að spá í eitt með þarna Dirty Night og svona kófsveittar brundskemmtanir. Það verður þetta fyrirbæri Body shots á svæðinu. Þar sem það liggur stúlka á borðinu með gólandi apamenni allt í kring að grípa ósjálfrátt í standpínurnar sínar. Svo borgar þú fyrir að sleikja salt eða eitthvað af maganum á stelpunni og svo tekurðu skot. Þetta er mögulega tippalegasta fyrirbæri sem ég veit um. Er eitthvað sérstaklega sexí eða gaman að sleikja salt btw? En allaveganna, það sem ég var að spá er, hvernig er það með hreinlætið? Eru menn bara að [...]
Holí sjitt, það er komið nýtt interface á Blogger! Bara svona tveimur árum eftir að þessi miðill dó!Ég er að spá í að vera seinasti bloggarinn. Þetta verður keppni á milli mín og Dr Gunna.
Bara svo þið vitið, þá er ég miklu duglegri að tjá mig á Twitter. Ég er @breidholt
OOhh nágrannarnir á móti eru alltaf að horfa á eitthvað skemmtilegt í fína sjónvarpinu sínu. Núna er það Hercule Poirot. Ég vildi að ég ætti sjónauka og svona gler-hring til að heyra hljóðið eins og í njósnamyndunum. Jæja ég er farinn að horfa á Nýsjálesk/Miðbaugsgínesku myndina 'Hafgola Lífsins' á RÚV. Í gamla túbusjónvarpinu sem gefur reglulega frá sér ærandi surg og slekkur á sér.

Ég bíð spenntur eftir að Bruce Willis og Michelle Rodriguez geri myndina "THE TANK TOPS" NO SURRENDER! NO MERCY! NO SLEEVES! -IMDB þýðir það auðvitað sem "Tvö á (tank) toppnum".

Enginn er að blogga lengur, allir eru bara á Twatter og að gera statusa og Blogger er ekkert að gera neitt í neinu. Sjáiði bara lúkkið á þessu! Það er ekkert að hjálpa ykkur að vera með alveg trylltan 2001 fíling í gangi sko.
Einu sinni þegar ég var í sjö ára bekk varð ég fyrir þvílíku órættlæti að enn þann dag í dag er ég að hugsa um það með skömm, biturð og grenju (hah ég ætlaði að skrifa 'gremju' en 'grenju' lýsir þessu mun betur!). Kennarinn var að fræða okkur um spendýr og bað okkur að nefna dæmi um slíkar skepnur. Krakkarnir góluðu hestur og belja og allt það. Ég rétti upp hönd, mjög stoltur af sjálfum mer og tilkynnti það sigurviss að dæmi um spendýr sé: „maður". Hlátrasköll! Krakkarnir hlógu að mér og frussuðu [...]
Þá er mínu (10km) maraþoni lokið. Ég valhoppaði í mark á flögutímanum 56:46 (þá er farið eftir flögu sem er fest við mann, en ekki byssutímanum, sem er ekki eins nákvæmur). Reyndar varð ég að valhoppa, því fólk var gubbandi villt og galið við endamarkið. Greinilegt að Powerade og hafragrautur er morgunverður meistaranna. Ég vildi reyndar fá svona álpappírsteppi utan um mig þegar ég kæmi í mark. Nú eða svona lárviðarlauf eða jafnvel fána til að hlaupa aðeins um með. En ég fékk að minnsta kosti medalíu. Mína fyrstu medalíu hvorki meira né minna! ég er afar [...]

Ég ætla að puða fyrir Kattavinafélagið (sem reka m.a. Kattholt ) í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun. Ef þið viljið heita á mig og styrkja ketti í nauð þá getið þið smellt á linkinn: http://hlaupastyrkur.is/hlaupi d/keppandi?cid=1818 Mjá B
Mikið er skemmtilegt hvernig orðið 'víti' er notað í knattspyrnu. Víti er bara helvíti. HELL. „Hann dæmir víti." Jájá dómarinn kallar bara helvíti yfir markvörðinn. Gó tú hell. Vítaspyrna er sumsé the Kick of Hell. Sem var eða var ekki mynd með Jea-Claude Van Damme. Það sama á líka við um orðið heljarstökk, sem er bara the Leap of Hell. Helvíti fyndið.
Mér finnst alltaf svo fyndið þegar atvinnuglyðrurnar okkar eru alveg, „í apríl mun ég svo sitja fyrir í Playboy. Þetta er bara eitthvað sem ég hef alltaf dreymt um og ég bara ákvað að slá til! Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig og mikið búzt fyrir minn feril." Og svo eru fyrirsagnirnar alveg, TANLÍNA SKINKUDÓTTIR SITUR FYRIR Í PLAYBOY! (ÍSLAND BEST) En þúst... svo er þetta bara gríska Playboy. Eða eitthvað. Jógóslavneska Playboy eða Færeyska Playboy. Sko *ahem* svona er þetta: Það er bara "Playboy" ef það er Kaliforníska, Bandaríska, HughHefneríska Playboy Magazine©. [...]
Ég, Jónína og fjölskyldan hennar heimsóttum ömmu Jónínu í Fossvogskirkjugarðinn í dag. Ég kem ekki oft þangað, en þetta er alveg svakalega fallegur staður. Trén alveg himinhá, fullt af þröstum að tína sér strá í hreiður og það er alltaf forvitnilegt að ganga um og skoða gamla legsteina. Börn sem létust innan árs, fólk sem varð hundrað ára. Að ímynda sér sögurnar á bakvið nöfnin og starfsheitin. Skósmiður. Tannlæknisfrú. Sérstaklega er áhugavert að skoða legsteina hermannanna sem létust nálægt Íslandi í stríðinu. Þeir grafreitir eru afar snyrtilegir og við einn legsteininn lá gömul ljósmynd af sjóliðanum og [...]
Ég er að gera heiðarlega tilraun til að vera með í fótboltastuði og hafa gaman af HM. En þessi 0-0 jafntefli eru gjörsamlega að gera mig grasgrænann. Kommon, fótbolti, koddu til móts við mig. Ekki gera Bandaríkjamönnunum til geðs og vera svona agalega boring.
Ég fylgist ekki neitt með NBA lengur, en við vorum að rifja upp gömlu logoin í vinnunni um daginn og það var gaman. Og nostalgískt. Nóg hjal, skoðum. Orlando að flippa. Shaq var með þeim, en ég var aldrei neinn rosalegur fan. Kannski af því það var einhvernveginn verið að troða honum oní kokið á okkur unglingunum. RAD og COWABUNGA mölva spjaldinu rappedíklapp. It's The Shaq Attaq, pimpmasters! NOT! Þetta er bara fyndið. Alveg Yosamety [...]
Æjjjji kvöld/næturdagskráin á RÚV um helgar er svo agaleg alltaf... af hverju mega ekki vera dýralífsmyndir og Stephen Fry í staðinn? RÚV er með betri dagskrá á mánudagskvöldum en um helgar. Pfff. Þetta er ekki laugardagskvöld, heldur laugardagsKVÖL(d). Jæja ég er farin út.
Ég var uppí Breiðholti þegar Jóní hringir í mig og spyr hvort ég vilji kíkja með henni heim til vinkonu hennar í partý með einhverjum píum. Ég hélt sko ekki. Ekki nenni ég sko að hanga í stelpu partý. Pff. Ég skellti á og hélt áfram að horfa á sjónvarpið og grínast með mömmu, systur minni og tveimur frænkum mínum. ### Svo er alltaf voða gaman þegar LHÍ útskriftarsýningin opnar. Ég tók þetta fyrir einum fimm árum síðan og finnst ég vera voðalegur öldungur. Þetta er allavega einn af mínum uppáhalds dögum [...]
19. apríl: „NEYDDUR TIL ÞESS AÐ DREKKA STÍFLUEYÐI!!!" http://visir.is/article/201004 19/FRETTIR01/275877513 20. apríl: „...þá bendir ekkert til þess að maðurinn hafi verið neyddur til þess að drekka vökvann..." http://visir.is/article/201004 20/FRETTIR01/160305233
Ég greini þjóðernisstolt í fréttaflutningi af gosinu. Þegar útvarpsfréttirnar segja að gosið í Eyjafjallajökli sé að loka öllum flugvöllum Bretlands þá nota þau sama tón og þau myndu nota til að tilkynna að Tom Hanks hafi sést með húfu frá 66° Norður. Eða að John Travolta hafi fengið bensín á flugvélina í Keflavík. Það er auðvitað fátt sem íslenskir fjölmiðlar elska meira en að nefna Ísland í tengslum við alþjóðlegra viðburði. Og nú eru Belgískir ferðamenn að gráta sólarlandaferðina sína og sjálfur Bandaríkjaforseti kemst ekki til útlanda út af ÍSLENSKU eldfjalli! Þá er sko [...]
Ég er alveg svakalega spenntur fyrir deginum í dag. Fyrst ætla ég að kíkja á Essó þar sem er verið að gefa bensín handa þeim sem mæta klæddir eins og Silvía Nótt. Svo ætla ég niður í Kringlu þar sem ég las að Michael Jordan muni gefa eiginhandaráritanir. Svo ætla ég að fara niður í Laugardal til að reyna að sjá hreindýrið sem slapp úr Húsdýragarðinum. Bensíntankurinn sem ég fékk frá Essó kemur sér vel, því ég ætla að rúnta á strandstað flutningaskipsins Wilson Muuga en það á víst að gefa allan varninginn sem datt úr því. Svo enda ég [...]