![[MP3] Roadside Poppies](http://cdn.elbo.ws/posts/1162097_lg.jpg)
Mér varð það á í fyrrasumar að fjölga mannkyninu. Þá fæddist lítil yndisleg stúlka sem telst þá vera sjötti fjölskyldumeðlimurinn, fyrir utan kettina og hamsturinn. Skyndilega varð fallega bláa Nubiran mín (sem gekk undir heitinu Bláa Bláberið) alltof lítil og við fórum að svipast um eftir stærri bíl. Eftir nokkar umhugsun var ákveðið að splæsa í þægindi í stað sparnaðar og verslaður var risastór 7 manna Chevrolet sem fékk nafnið Rauða Rúsínan. Síðan skall á kreppa og skrjóðurinn sá er þeim galla búinn að allir mælar eru í mílum en ekki kílómetrum. Það vandast því málið að [...]