![[MP3] Springfactory](http://cdn.elbo.ws/posts/1164877_lg.jpg)
Enn og aftur fell ég í sömu gryfjuna, sumar eftir sumar. Ég fer í sumarfrí, og í staðinn fyrir að vakna snemma og koma einhverju í verk, þá sef ég allavegana til hádegis, og er svo tvo tíma að nudda stírurnar úr augunum yfir kaffibolla, og þá er dagurinn hálfnaður, og tekur því varla að byrja á neinu. Það er því við hæfi að hlýða á lagið "Get out of bed" með sænska dúettinum Springfactory, sem samanstendur af Peter Gunnarson úr Suburban Kids With Biblical Names og vinkonu hans Linu Cullemark. [MP3] Springfactory - [...]