![[MP3] Magic Wands](http://cdn.elbo.ws/posts/1214293_lg.jpg)
Ég á það til að stilla á X-ið 977 á morgnana meðan kaffið er að malla. Þeir eru eitthvað hressilega að misskilja hlutina. Glaðhlakkalegur maður skýtur inn á milli laga frasanum "X-ið, þú heyrir það fyrst hér!", og svo kemur "Bohemian like you" með Dandy Warhols. Eins og enginn hafi nokkurn tíman heyrt Vodafone lagið áður. Ég held að þetta sé ekki allskostar rétt. Reyndar hef ég yfirleitt heyrt öll lög á X-inu áður, man allavegana ekki í svipinn eftir að hafa uppgötvað einhver ný sannindi þar, enda keyrir stöðin á playlista eins og aðrar gróðamaskínur. Ég [...]