
Frændur vorir danir ná annað slagið að punga út einni og einni spennandi og frumlegri poppsveit. No And The Maybes passar svo sannarlega í þann flokk og fer létt með það. Ég verð eiginlega að játa að ég hef ekki heyrt jafn áheyrilega tónlist frá dönum síðan ég heyrði fyrst í Figurines hérna um árið. No And The Maybes feta í svipuð fótspor og Figurines hvað sækadelískt nýaldarpopp varðar en stíga þó skrefinu lengra og bragðbæta tónlistargrautinn með barokkpoppi ala Vampire Weekend , 80's nýbylgju og rafrænum áhrifum ýmsum sem erfitt [...]