
Eins og flestum ætti nú að vera orðið kunnugt um er Michael Jackson látinn, aðeins fimmtugur að aldri. Fregnir af andláti hans bárust eins og eldur um sinu á internetinu í gærkvöldi og voru flestir ef ekki allir slegnir að heyra um fráfall poppgoðsins. Það er varla til það mannsbarn sem ekki þekkir Michael Jackson og er því ekki ofsögum sagt að hann hafi verið Elvis okkar tíma, þó svo að ólíkir hafi þeir verið. Jackson vann að undirbúningi tónleikaraðar sem átti að marka endurkomu hans í tónlistarheiminn en á sama tíma að vera hans síðasta. Tónleikaröðin átti [...]