Blog: Rjominn

Antony tekur Beyoncé

Antony & The Johnsons & Metropole Orkest - Crazy in Love
Ég hef pervertískan áhuga á þekjum (aka ábreiðum/tökulögum/covers) en þó sérstaklega þegar lagaval listamanna er óvænt. Það vakti sérstakan áhuga minn þegar þegar fréttist fyrir nokkru að Antony and the Johnsons ætluðu að tækla r'n'b smell Beyoncé Knowles , "Crazy In Love", og gefa út sem b-hlið nú seinna í sumar. Hljóðversútgáfan er ekki komin í umferð enn en myndband af Antony að flytja lagið á tónleikum í Amsterdam rataði nýlega á internetið. Nú er bara að hlusta og sjá hvernig kallinum tekst til...
Location: Reykjavik, Iceland