
Þó svo að Rjóminn sé mestmegnis tileinkaður hinum mörgu geirum tónlistar er ekki úr vegi að fjalla um annars konar listir þegar við á. Eftir heldur óspennandi kvikmyndabylgju síðustu mánuði glittir nú í athyglisverðar myndir innan um grámygluna og er því tilvalið að skella inn sýnishornum úr þeim fyrir áhugasama. Það má finna ágætis lög í brotunum, til að mynda með Arcade Fire , The Smiths og Reginu Spektor og hvetjum við alla til að kíkja í bíó þegar sýningar hefjast! Fyrsta má nefna kvikmynd sem margir bíða spenntir eftir, eða [...]