
Sá orðrómur hefur heyrst endrum og eins á síðustu tíu árum að stórindísveitin Pavement kunni að taka upp þráðinn á nýju. Fæstir hafa nú lagt mikla trú í slíkar sögusagnir enda voru stofnendur sveitarinnar, Stephen "SM" Malkmus og Scott "Spiral Stairs" Kannberg , víst langt frá því bestu vinir undir lok ferils hennar. Báðir hafa svo verið að dunda sér við annað síðan; Malkmus gefið út fjórar plötur ásamt The Jicks og á tímabili starfrækti Kannberg hljómsveitina Preston School of Industry og er nú að gefa út sólóskífu í október. [...]