
Hina norsku Kings of Convenience þarf varla að kynna fyrir Íslendingum. Annar helmingur sveitarinnar, Erlend Oye, sótti landið heim árið 2006 og spilaði þá á Airwaves með hinni sveit sinni, The Whitest Boy Alive og hlaut lofsamlega dóma fyrir frammistöðu sína. Kings of Convenience gáfu út sína fyrstu plötu árið 2001, remix útgáfu af henni stuttu síðar og svo aðra stúdíóplötu, Riot on an Empty Street, árið 2004. Það var svo ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum að ný plata með sveitinni leit dagsins ljós, en hún ber heitið Declaration of Dependence [...]