
Popppönk hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér jólasmáskífuna Jólafeitabolla . Fæst hún í rafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum landsins, svo sem gogoyoko , tónlist.is og vefverslun Havarí . Smáskífan inniheldur tvö jólalög, annað er nýtt lag úr smiðju Morðingjanna sjálfa og nefnist það "Jólafeitabolla" og hitt er ábreiða á hinu þekkta lagi "Þú komst með jólin til mín". Morðingjarnir fengu góða gesti til aðstoðar við upptökur á lögunum tveim. Jens Hansson úr Sálinni hans Jóns míns þenur saxófóninn í "Jólafeitabollu" og svo syngur Þórunn Antonía með [...]