
Rokksvetin fornfræga Dead Sea Apple , sem legið hefur í dvala undanfarin ár, er nú farin að láta á sér kræla aftur og mun fagna 20 ára tilvist sinni í ár með plötuútgáfu. Platan sú, sem heita mun Dead Sea Apple III , mun innihalda lög sem tekin voru upp 2001-2002 í Stúdíó 12 hjá RÚV en voru aldrei gefin út. Hér er eflaust á ferð mikil happafengur fyrir íslenska gruggrokkara á besta aldri og hver veit nema sveitin nái að heilla rokkara af yngri kynslóðinni um leið? Hér að neðan eru tvö lög af umræddri [...]