
Ákvað að endurbirta gamla færslu vegna umræðu sem kom upp á milli nokkurra tónlistarspekúlanta varðandi gamalt þungarokk. Ég rakst fyrir tilviljun á tæplega 3 ára gamlan umræðuþráð á Netinu þar sem heitar umræður höfðu myndast um hvað væri almennt talið fyrstu eiginlegu þungarokkslögin. Eins og gefur að skilja voru ekki allir sammála. Margir nefndu Helter Skelter" með Bítlunum sem fyrsta þungarokkslagið á meðan aðrir töldu Born To Be Wild" með Steppenwolf vera það fyrsta. Eftir að einn gestur spjallrásarinnar hafði hinsvegar komið því á framfæri að útgáfa Blue Cheer á [...]