Blog: Rjominn

Extreme Chill Festival 2012

Extreme Chill Festival 2012 Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2012 - Undir Jökli verður haldin hátíðleg í þriðja sinn dagana 29.júní - 1.júlí nk . Hátíðin hefur heldur betur kynnt undir raftónlistarsenu Íslands síðustu misseri auk þess sem fastakvöld Extreme Chill á Kaffibarnum hafa fengið mikið lof innlendra sem erlendra raftónlistarunnenda undanfarin ár. Hátíðin er haldin á Hellisandi , við rætur Snæfellsjökuls og gefur staðsetning og náttúra veisluhöldunum aukinn byr undir vængi þar sem náttúruöflin og raftónlistin fléttast saman í kraftmikinn og gæsahúðarframkallandi kokteil sem hverfur seint úr minni hátíðargesta. Hátíðargestir verja svefnstundum sínum og dægrum ýmist á tjaldstæði við bæjarmörk Hellisands [...]
Location: Reykjavik, Iceland