
Þó svo að Tyondai Braxton , annar forsprakki stærðfræði-rokksveitarinna r Battles , hafi nýverið sagt skilið við bandið eru þeir ekki dauður úr öllu æðum enn. Sveitin greindi nefnilega frá því á dögunum að ný plata væri í bígerð. Þessi síða fór svo í loftið í dag þar sem Battles gefur upp plötutitilinn, útgáfudag, lagalista og samverkamenn. Platan mun sumsé heita Gloss Drop , inniheldur 12 lög, og líkt og fyrri plötur sveitarinnar þá kemur hún út á vegum Warp -útgáfunnar. Nokkrir góðir gestir ætla að kíkja í heimsókn til Ian Williams [...]

Út er komin platan Andefni með tónlistarmanninum Prince Valium ásamt ep plötunni Life’s a Beach ” með Tonik . Plöturnar eru gefnar út af nýju íslensku útgáfufyrirtæki, TomTom Records , sem sérhæfir sig í útgáfu á íslenskri raftónlist. Útgáfurnar má nálgast í stafrænu formi á heimasíðu TomTom Records frá og með 24. febrúar 2011. Þar má einnig hlusta á plöturnar í gegn um streymi. Andefni er önnur sólóplata listamansins Prince Valium en árið 2005 kom út hans fyrsta plata, Andlaus [...]

Þær eru fáar hljómsveitirnar sem feta jafn ótroðnar slóðir og Apparat Organ Quartet . Sveitin var stofnuð árið 1999 og árið 2002 kom út plata samnefnd sveitinni. Þeirra fyrsta verk sló umsvifalaust í gegn og tónleikar, sem voru yfirleitt sjaldgæfir og með löngum millibilum, seldust ávallt upp. Biðin eftir annari plötu yrði þó enn lengri en það var ekki fyrr en 2010 sem meistarastykkið Pólýfónía leit dagsins ljós. Henni var einstaklega vel tekið, enda aðdáendur sveitarinnar orðnir langeygir eftir framhaldsskífu og var platan m.a. útnefnd „Plata ársins“ á Fréttablaðinu . Apparat komu fram á Iceland [...]

Hefjum þessa yfirferð á tveim lögum af EP plötunni Diagonal Fields með hjómsveitinni Arc in Round . Arc in Round - 3 a.m. All the Time Arc in Round - 3 a.m. All the Time Arc in Round - Spirit Arc in Round - Spirit Davila 666 - Esa Nena Nunca Regreso Af plötunni Tan Bajo sem kemur út næstkomandi þriðjudag. [...]
Kiriyama Family er elektró popp kvintett. Nafnið er komið úr japönsku skáldsögunni Battle Royale eftir Kōshun Takami . Sveitin var upprunalega stofnuð árið 2008 en er fyrst núna að koma fram úr æfingarhúsnæðinu. Kiriyama hefur einungis komið tvisvar fram á tónleikum en annars hefur tíminn farið í hugmynda- og þróunarvinnu, á milli þess sem hljómsveitarmeðlimir hafa verið við nám erlendis. Í dag er hljómsveitin komin á fullt skrið með að taka upp demó og semja lög fyrir plötu sem vonandi kemur út seinna á árinu. Stefnt er að því að taka upp myndband við fyrsta útgefna [...]

Það er orðið asni langt síðan tekin var staðan á athyglisverðum listamönnum utan landssteinanna og því gráupplagt að skella inn vænni yfirferð. Byrjum á eins manns sækadeliku sveitinni Dumbo Gets Mad sem gaf út sína fyrstu breiðskífu, Elephants At The Door , fyrir sléttri viku þann 2. febrúar. síðastliðinn. Áhugasamir geta halað plötunni niður endurgjaldslaust hér. Dumbo Gets Mad - Plumy Tale Dumbo Gets Mad - Plumy Tale Dumbo Gets Mad - Ecletic Prawn [...]

Í desember síðastliðnum sögðum við ykkur frá nýrri stuttskífu raftónlistarsveitarinnar Jungle Fiction sem heitir "Heat of The Nite" og myndbandi við lagið sem tekið var upp í Las Vegas. Nú hefur sveitin sent frá sér nýtt remix og hljómar það hér að neðan. Cassette Culture - We Once Had An Empire (Jungle Fiction Remix) No related posts.

Ný tónlistarútgáfa hefur verið sett á laggirnar og mun hún sérhæfa sig í íslenskri raftónlist. Forsprakkar útgáfunnar eru Jóhann Ómarsson , sem gengur undir listamanns nafninu Skurken , og Árni Grétar , betur þekktur sem Futuregrapher . Tónlistarmenn sem þegar eru komnir á skrá eru ekki af verri endanum, en það eru t.d. Prince Valium , Tonik , Yoda Remote ásamt Futuregrapher og Skurken . Fyrstu útgáfurnar verða 12. Febrúar næstkomandi, en þá munu koma út Andefni , nýja verkið [...]
Þó mörgum finnist eflaust eins og Airwaves sé nýafstaðin hafa aðstandendur hátíðarinna þegar staðfest komu fyrstu erlendu og innlendu listamannanna. Erlendis frá má fyrsta nefna The Vaccine s, heitasta band bretlandseyja um þessar mundir, en við íslendingar eigum nú smá í henni því þar mundar samlandi okkar, Árni Hjörvar Árnason , bassagígjuna. Hinar erlendu sveitirnar sem þegar hafa verið bókaðar eru black metal sveit nokkur frá Brooklyn sem nefnist Liturgy og þýska ungmennasveitin Sizarr . The Vaccines - Wreckin' Bar (Ra Ra Ra) [...]

Hin hálf-goðsagnakennda Seefeel lagði upp laupana árið 1997, skömmu eftir að þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar leit dagsins ljós hjá útgáfufélagi Aphex Twin . Það hafa eflaust verið mikil vonbrigði fyrir suma, enda hafði bandið ekki verið að nema í 5 ár eða svo - en engu að síður komið út þremur þrusu breiðskífum af einstaklega áheyrilegu raf-rokki. Það gladdi því undirritaðann sérlega að heyra um endurkomu bandsins árið 2008 og sérstaklega þegar Seefeel fór að lofa nýrri breiðskífu. Nú styttist óðfluga í að þessi fjórða breiðskífa bretanna líti dagsins ljós, en það mun vera [...]

Febrúarmánuður ætti að gleðja margan tónlistarunnandann og einna helst höfða til víðs hóps í þeim efnum. Plötuútgáfa mánaðarins stefnir í sætt og er ekki seinna vænna en að kynna sér örlítið helstu plötur febrúarmánaðar. Glöggir lesendur Rjómans undanfarið kannast án efa við eitthvað af því sem febrúarmánuður færir fram. Dr.Dre - Detox Goðsögn rappheimsins Dr.Dre hefur unnið að þriðju breiðskífu sinni, Detox , allt frá árinu 1999 . Síðasta plata doktorsins, 2001 , sprengdi [...]

Adebisi Shank - This is the Second Album of a band called Adebisi Shank Byrjum þessa yfirferð á annari plötu írsku sveitarinnar Adebisi Shank sem mig grunar að hafi farið fram hjá morgum tónlistaraðdáandanum á síðasta ári. Hér er sannur kostagripur á ferð sem teljast verður skyldu áheyrn. Emily Arin - When You Knew Me When Fyrsta smáskífan af plötunni Patch of Land sem kom út núna á fimmtudaginn. Emily Arin - When You Knew Me When [...]

Maður er sí og æ að rekast á góða tónlist á þessu undarlega fyrirbæri, internetinu, en það vill brenna við að maður sé búinn að gleyma nýja uppáhaldsbandinu sínu jafnharðan. Sú varð ekki raunin þegar ég kynntist hljómsveitinni Dënver núna nýverið, og tveimur vikum síðar er það enn mitt fyrsta verk í vinnunni að kveikja á tónlistinni þeirra. Það kallast nú ágætt á þessum seinustu og verstu tímum að hlusta daglega á sömu sveitina í tvær vikur. Það eru skötuhjúin Milton Mahan og Mariana Montenegro sem skipa þennan dúett og þau eru [...]

Enn heldur tónlistarmaðurinn Panda Bear áfram að 'tísa' aðdáendur sína. Undanfarna mánuði hefur hann verið að demba inn einu og einu lagi að væntanlegri plötu sinni - svona nokkurnvegin fyrirvaralaust. Í þetta skiptið er það lagið "Atiba Song" sem heyra má í þessu hjólabrettamyndbandi hér að neðan, sem menn að nafni Jefferson og Evans útbjuggu. Ekki er mér að full ljóst hversvegna kappinn kaus að fara þessa leið, en ég kvarta þó ekki yfir að fá að taka forskot á sæluna. Breiðskífan, sem hlotið hefur nafnið Tomboy , er væntanleg þann 19. apríl [...]

Þá er nýtt tónlistarár hafið og leitin að öllu því nýja, ferska, spennandi og áheyrilega heldur áfram. Meðfylgjandi eru nokkur ný og nýleg lög af erlendri grundu (fyrir utan eitt) sem annað hvort rötuðu ekki fyrir sjónir og heyrnir manns á árinu sem leið eða eru nýsprottin fram í dagsljósið. Njótið vel! PS I Love You - Facelove Af tvískiptri 73 Diamond Rings / PS I Love You (kom reyndar út 2009 en við látum það slæda í þetta skiptið). PS I Love You - [...]
Nýtt íslenskt band, Kiriyama Family , gaf út sitt fyrsta lag á miðnætti nú um áramótin og því óhætt að segja að hér sé um að ræða fyrsta útgefna íslenska efni á árinu. Lagið heitir "Sneaky Boots" og er einkar hressilegur elektrópopp smellur. Hljómsveitarmeðlimir eru þeir Jóhann V. Vilbergsson (söngur, gítar, bassi, hljómborð), Karl M. Bjarnarson (söngur, gítar, bassi, hljómborð), Víðir Björnsson (gítar, bassi, hljómborð), Guðmundur Geir Jónsson (gítar, bassi, hljómborð) og Bassmundur Labbason (trommur og slagverk). Sveitin stefnir á þónokkuð tónleikahald á árinu og [...]
Mér þykir hugmyndin um að taka saman lista yfir "lög ársins" í rauninni fremur fáránleg. Hvernig í ósköpunum á að færa rök fyrir því að eitt stakt lag sé endilega betra en eitthvað annað án samhengis eða einhverskonar afmörkunar? Sérstaklega ef þau koma nú úr sitthvorri áttinni, eru sett fram á gjörólíkan hátt eða með ólíkum markmiðum? Þessvegna kýs ég að kalla þennan lista " Upphálds lögin mín frá árinu 2010 ". Ég er að tala á persónulegum nótum, gera grein fyrir persónulegri upplifun og hirði lítið um rökfærslur eða argúment. Ég vona bara að þið hafið gaman af - [...]

Jólaandinn grípur raftónlistarmenn jafnt og aðra og hér er glænýr viðsnúningur á "Winter Wonderland" eftir Anton Kaldal en hann gengur allra jafna undir listamannsnafninu Tonik . Áhugasömum má benda á að á Bandcamp síðu Tonik má nálgast frítt niðurhal á stuttskífunni Bogus Journey sem kom út í ár: http://tonik.bandcamp.com/albu m/bogus-journey Tonik - Winter Wonderland No related posts.

"Heat Of The Nite" er fyrsta smáskífan frá ungu og upprennandi íslensku raftónlistarmönnunum Jungle Fiction . Nú þegar eru þeir með stór remix undir sér (Kele, Acid Washed, Neon Indian) og fyrsta smáskífan þeirra verður gefin út frí á vefsíðunni þeirra www.junglefiction.com og á Soundcloud . "Heat Of The Nite" tónlistarvídeóið, sem tekið var upp í Las Vegas, er eftir grafíska hönnuðinn Jesse Nikette . Smáskífan inniheldur þrjú lög með áhrifum frá Ennio Morricone , Tom Tom Club og Sylvester svo dæmi séu nefnd. Einnig eru þrjú remix [...]

Um árabil hef ég sankað að mér svokölluðum moog plötum þegar ég hef rekist á. Um er að ræða hljómplötur sem komu út undir lok 7. áratugarins og vel fram á þann 8. og innihéldu allskyns tónlist spilaða á Moog hljóðgervilinn margfræga. Svo skemmtilega vill til að árið 1970 komu út tvær jólamoogplötur, Christmas Becomes Electric með The Moog Machine og Switched On Santa með Sy Mann , og er jólarjómi dagsins tileinkaður þeim. Plöturnar innihalda báðar synthískar útgáfur af þekktum jólaslögurum og ættu að koma fólki í rafmagnaða jólastemmningu. [...]