
Hér að neðan hljómar glænýtt lag úr hljóðverinu Hljómnum . Lagið ber nafnið Carol" og er með hljómsveitinni Blær . Mun þetta vera fyrsti singullinn sem hljómsveitin gefur út og er lagið frumsamið á alla kannta. Ylfa Marín Haraldsdóttir (Söngur), Ásgeir Örn Sigurpálsson (Gítar og píanó) og Ellert Ólafsson (Bassi) skipa sveitina en Páll Orri Pétursson stjórnaði upptöku og hljóðblandaði. Gestahljóðfæraleikari er Helgi Einarsson á slagverk. Blær - Carol Blær - Carol [...]

Mér barst til eyrna nokkuð áhugaverð plata með breska listamanninum Zoon van snooK sem nefnist The Bridge Between Life & Death en á henni er að finna fíngerða raftónlist með folk" áhrifum eða folktronica" eins og stefnan er oft nefnd. Hljóðin (sömplin) sem heyra má á plötunni eru að miklu leiti tekin upp hér á landi en einnig koma fram á plötunni íslenskir listamenn, nánar tiltekið Amiina , Benni Hemm Hemm og Sin Fang . Einnig munu liðsmenn múm hafa lagt til remix fyrir aðra smáskífu plötunnar. Sjálfur segir Zoon [...]

Hljómsveitin Morgan Kane gaf nýverið út 6 laga EP plötuna The way to survive anything í gegnum Synthadelia Records. Finnbjörn Hv. Finnbjörnsso n sá um upptökustjórn. Upptökur byrjuðu í Júlí 2012 og fóru fram í Stúdío Sýrlandi fyrir utan trommur sem teknar voru upp í FÍH. Morgan Kane mun fylgja útgáfunni eftir með tónleikahaldi vítt og breitt um landið í sumar. Hægt er að versla gripinn á Gogoyoko , tonlist.is og iTunes. Tengfar færslur: [...]
Pönksveitin Saktmóðigur hefur sent frá sér nýja þriggja laga plötu sem nefnist Demetra er dáin og kemur hún samhliða út á 73 vínylskífu og á rafrænu formi. Vínylútgáfuna má kaupa frá næstu mánaðarmótum á völdum stöðum, m.a. Lucky Records og Geisladiskabúð Valda en rafræna útgáfu er nú þegar hægt að hala niður endurgjaldslaust á Bandcamp . Upptökum og hljóðblöndun stýrði Hafsteinn Már Sigurðsson í Stúdíó Ógæfu og um hönnun umbúða sá Jakob Veigar . Hljómsveitin Saktmóðigur var stofnuð árið 1991 og hefur starfað sleitulaust síðan. Fyrsta útgáfa hljómsveitarinnar [...]

Það er eitthvað merkilegt að gerast á Akureyri ef marka má þá fersku, tilraunakenndu raftóna sem þaðan berast. Hér að neðan hljómar lagið Í Áhyggjunarkoti" með norðlenska dúóinu Kne Kne sem skipað er þeim Agnesi Ársælsdóttur og Þórði Indriða Björnssyni . Þórð kannast einhverjir við undir listamannsnafninu DeerGod en heyra má tónsmíðar hans hér . Tengfar færslur: Legend með nýtt tónlistarmyndband Two Step Horror [...]

Íslenski stuðdúetinn Coco Bundy gefa nýlega út sína fyrstu smáskífu en hún ber heitið "My little box". Í laginu ræður poppaður og dansvænn eitís" fortíðarljómi ríkjum sem fær mann helst til að vilja grafa upp gamla Henson gallan henda sér út á dansgólfið. Lagið er frjálst til niðurhals í gegnum spilarann hér að neðan. Tengfar færslur: Sumarsmellur Baggalúts Maestro Potentiam

Synthadelia Records gaf í gær út nýja smáskífu með listamanninum Indigo (Ingólfur Þórs Árnason) af væntanlegri plötu hans sem koma mun út í haust. Mun þetta verða þriðja plata Indigo því árið 2007 gaf Smekkleysa út geisladiskinn Indigo sem innihélt tónlist samda og flutta af Völu Gestsdóttur og Ingólfi Þór en þremur árum áður gáfu þau út diskinn Too late to shine . Tengfar færslur: Synthadelica í sókn. Gefa út Jóhann Kristinsson og [...]

Nýlega kom út platan Didn't know / Beam með íslenska raftónlistarmanninum Snooze Infinity . Snooze Infinity er listamannsnafn Emils Svavarssonar , en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann komið víða við á tónlistarferli sínum, t.d. sem annar helmingur tvíeykisins Yoda Remote . Tónlist Snooze Infinity er dansskotin (house/garage) sem fær hæglátasta fólk til að hreyfa á sér bossann. Platan kemur út á vegum Möller Records . Um tónjöfnun sá Jóhann Ómarsson . Tengfar færslur: [...]
Skagasveitin My Sweet Baklava skellti sér í skógræktina og tók þar upp myndband við sumarsmellinn Fun in the sun". Upptaka og klipping var í höndum Kristins Gauta Gunnarssonar en auk sveitarinnar leikur Aldís Ylfa Heimisdóttir stórt hlutverk. Tengfar færslur: My Sweet Baklava Hjaltalín - Sweet Impressions Fyrsta myndbandið frá hljómsveitinni Valdimar

Hér að neðan hljómar lagið Untaken Photographs" með hljómsveitinni Lava Garden og er þetta er fyrsti singullinn sem sveitin gefur út. Lag og texti er eftir Árna Frey Haraldsson og Rebekku Sif Stefánsdóttur en Páll Orri Pétursson stjórnaði upptökum og hljóðblandaði. Gestahljóðfæraleikarar eru þeir Árni Guðjónsson (Píanó), Hlynur Júní Hallgrímsson (Mandolín) og Hjörvar Hans Bragason (Bassi). Lava Garden - Untaken Photographs Lava Garden - Untaken Photographs [...]

Botnleðja er með líflegri og skemmtilegri jaðarsveitum síðustu áratuga og er það afar ánægjulegt fyrir Record Records að hlotnast þann heiður að gefa út fyrstu safnplötu sveitarinnar er nefnist Þegar öllu er á botninn hvolft . Til að fagna þessari veglegu útgáfu heldur Botnleðja útgáfutónleika í Austurbæ, fimmtudagskvöldið 27. júní. Miðasala hefst fimmtudaginn 6. júní kl. 10:00 á Miði.is . Þegar öllu er á botninn hvolft er tvískipt safnplata sem inniheldur tvo geisladiska. Fyrri diskurinn inniheldur átján lög og þar af eru sextán bestu lög þeirra af breiðskífum sveitarinnar, sem eru fimm talsins. Einnig [...]

Væntanleg er platan Bláar raddir en hún inniheldur lög Gísla Þórs Ólafssonar við ljóð Geirlaugs Magnússonar úr bók hans Þrítengt (1996). Lögin voru flest samin í byrjun árs 1999 en hafa fengið að þróast og dafna þangað til upptökur hófust fyrir u.þ.b. ári. Tekið var upp með hléum í Stúdíó Benmen og sá Sigfús Arnar Benediktsson um upptökustjórn á plötunni sem væntaleg er í júlí næstkomandi. Meðfylgjandi mynd gerði Margrét Nilsdóttir . Tengfar færslur: [...]
Hljómsveitin Útidúr frumsýni í gær nýtt myndband við lagið Vultures" en það er að finna á plötunni Detour sem sveiitn sendi frá sér á dögunum. Myndbandið var tekið hér á landi og var leikstjórn í höndum Nathan Drillot . Tengfar færslur: Nýtt myndband frá Maestro Ultra Mega Technobandið Stefán með nýtt myndband Nýtt myndband frá Berndsen
Tónlistarmyndbandið er við lagið Trouble", sem er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Bellstop , sem kemur út hér á landi um miðjan Júní og nefnist Karma . Leikstjóri myndbandsins er Sigurgeir Þórðarsson hjá Saga Film og var myndbandið tekið upp í Mosfellsbæ. Bellstop skipa Elin Ólafsdóttir og Rúnar Sigurbjörnsso n sem áður mynduðu dúettinn Heima . Tengfar færslur: Nýtt tónlistarmyndband Emmsjé Gauta The Assassin of a Beautiful Brunette - Lights [...]

DJ Flugvél og Geimskip hafa gefið út nýtt lag sem nefnist ,,Draumar töframannsins" og er það fyrsta af væntanlegri plötu sem bera mun titilinn Glamúr í geimnum . Platan mun koma út seinna í sumar en hún mun hafa verið tekin upp að nóttu til með það í huga að láta lögin tengjast tunglinu, óravíddum geimsins og draumum. Annað kvöld, miðvikudaginn 5. júní á Faktorý, mun DJ Flugvél og Geimskip troða upp ásamt Sóley . Hægt er að nálgast lagið á tónlistarveitunni gogoyoko . [...]

Jökull Ernir er íslenskur tónlistarmaður búsettur í Los Angeles. Hljómsveit hans The Evening Guests , sem starfrækt hefur verið í rúmt ár, var að gefa út EP plötu í vikunni sem ber titilinn Not in Kansas anymore . Plötuna má heyra og versla í gegnum spilarann hér að neðan. Tengfar færslur: The Esoteric Gender - Prelude EP Nýtt frá Nolo Útidúr gefa út Detour

White Picket Fence" er nýtt lag frá söngkonunni, lagasmiðnum og mannfræðingnum Védísi Hervör . Hún mun seint teljast nýgræðingur í hinum íslenska tónlistarheimi þó hún hafi farið dult með afrek sín undanfarin misseri. Védís Hervör vinnur nú að sinni þriðju sólóplötu með hljómsveit sinni sem skipuð er Ásgeiri Ásgeirssyni (gítar), Róbert Þórhallssyni (bassi), Þorvaldi Þór Þorvaldssyni (trommur) og Þórhalli Bergmann (hljómborð). Tengfar færslur: Nýtt efni frá Bodies of Water [...]

Original Melody gaf út nýtt lag í gær. Heitir það Kool Aid" og er fyrsti singull af væntanlegri EP plötu sem ber nafnið Apollo Sessions og kemur út 7. júní næstkomandi. Í kjölfarið munu fylgja þrjár aðrar EP plötur og er Apollo Sessions því fyrsti hluti af fjórum. Þess má geta að Unnsteinn Manuel úr Retro Stefson þenur raddböndin með Original Melody í laginu. Original Melody - Kool Aid Original Melody - Kool Aid [...]

Strákarnir í Sing for me Sandra voru að senda frá sér nýtt lag við ljóð Jónasar Hallgrímssonar . Sveitin mun koma fram á Keflavík Músík Festival og Ólæti á Ólafsfirði í sumar og er líklegra en ekki að þar hljómi nýjir tónar í bland við eldri. Þetta er án efa ástaða fyrir einhverja til að bregða sér út fyrir borgarmörkin. Sing for me Sandra - Andvökusálmur Sing for me Sandra - Andvokusalmur Tengfar [...]

Í dag kemur út djúphús smáskífan Fjall frá raftónlistarmanninum Futuregrapher . Verkið kemur út hjá íslenska forlaginu Lagaffe Tales og inniheldur endurhljóðblandanir frá Moff & Tarkin , Jónbjörn og Siggatunez , ásamt því að skífan skartar einu aukalagi sem nefnist Bjarni". Listakonan Jelena Schally sér um raddir á Fjall". Hægt er að nálgast pakkann á vefsvæði Lagaffe Tales : www.lagaffetales.com Tengfar færslur: Heiladans 4 - [...]