
Record Records kynnir með stolti útgáfu safnplötunnar This Is Icelandic Indie Music . Útgáfa þessi er kærkomið hjálpartól fyrir alla leitandi tónlistarunnendur og inniheldur hún tólf lög með jafnmörgum tónlistarmönnum og hljómsveitum sem eru á mála hjá hljómplötuútgáfunni. This Is Icelandic Indie Music kemur eingöngu út á geisladisk og er hún eingöngu fáanleg í plötuverslunum á Íslandi sem og á heimasíðu Record Records . Safnskífa þessi er ætluð þeim sem vilja fylgjast með því áhugaverðasta sem er í gangi í hinni blómlegu jaðartónlistarsenu Íslands hin síðari ár. Lögin á plötunni eru þessi: [...]
Eins og áður hefur komið fram er listamaðurinn ÍRiS nú á fullu að fjármagna útgáfu plötunnar Penumbra í gegnum vefinn Karolinafund . 7 dagar eru nú eftir að söfnuninni og til að auka framlög hefur ÍRiS nú sent frá sér glænýja smáskífu með laginu Swiftly Siren" og magnað myndband við. Leikstjóri myndbandsins er Peter Szewczyk . Rjómin hvetur alla aflögufæra til að styrkja ÍRis og hjálpa henni að fjármagna plötuna með því að smella hér . Tengfar færslur: [...]

Hljómsveitin 1860 stendur í stórræðum þessa dagana. Sænsk/ameríska útgáfufyrirtækið Gravitation Records gaf þriðjudaginn 14. maí út stuttskífuna Familiar EP sem inniheldur fimm órafmagnuð lög með sveitinni. Þar með bætist 1860 í hóp tónlistarmanna á borð við Strand of Oaks , Björn Olsson og The Tallest Man on Earth , sem allir eru til mála hjá Gravitation. Familiar EP er gefin út í Bandaríkjunum og Skandinavíu og geta áhugasamir nálgast plötuna á stafrænu formi á netinu. Heima á Íslandi er hljómsveitin að reka smiðshöggið á nýja breiðskífu sem væntanleg er í [...]

Stelpur rokka! munu halda tvennar rokksumarbúðir í sumar fyrir 12 til 16 ára stelpur. Dagana 10. til 14. júlí verða haldnar búðir á Akureyri í samstarfi við félagsmiðstöðvar á Akureyri og Menningarráð Akureyrar. Í Reykjavík verða rokkbúðirnar haldnar þann 18. júní til 12. júlí í húsnæði TÞM að Hólmaslóð 2. Í búðunum verður boðið upp á hljóðfærakennslu, hljómsveitaæfingar, vinnusmiðjur um ýmis þemu tengd konum og tónlist, tónleikaheimsóknir frá frægum íslenskum tónlistarkonum, daglega hressingu og stórglæsilega lokatónleika fyrir framan fullan sal fjölskyldu og vina! Skráning í báðar búðirnar hefst þann 15. maí á www.stelpurrokka.org [...]

Sin Fang gaf nýverið sína þriðju breiðskífu, Flowers , við góðar undirtektir tónlistarunnenda og gagnrýnenda. Hljómsveitin mun halda útgáfutónleika þann 12. júní til að fagna því. Tónleikarnir munu fara fram í Iðnó og hefjast kl. 21:00. Um upphitun sér hljómsveitin Vök , sem nýverið sigraði músíktilraunir. Miðasala hefst kl. 10 föstudaginn 17. maí á www.midi.is og er miðaverð aðeins 2.000 kr. Tengfar færslur: Útgáfutónleikar Rökkurróar Útgáfutónleikar Pascal [...]

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess er handan við hornið og hefst föstudaginn 24. maí næstkomandi. Hátíðin er haldin á KEX Hostel og Volta og koma 17 hljómsveitir fram á hátíðinni. Þrjár hljómsveitir koma frá Ástralíu og Skotlandi og svo 14 frá Íslandi. Dagskrá og upplýsingar um hátíðina er að finna á www.reykjavikmusicmess.com Hátíðin hefst þó með opnunarveislu á KEX Hostel fimmtudaginn 23. maí kl. 20. Þar munum við opna myndlistarsýningu samhliða hátíðinni en hátíðarhaldarar fengu hóp listamanna til að endurvinna sjónrænt kynningarefni þeirra hljómsveita sem koma fram. Eins mun hin frábæra [...]

Tónlistarkonan Lay Low býður upp á fría tónleika á netinu laugardag, 4. maí nk. klukkan 21.00 á íslenskum tíma. Tónleikarnir verða haldnir í stofunni heima hjá Lay Low í Ölfusi og sendir út á netinu í boði Símans og Inspired by Iceland. Hér verður hægt að nálgast útsendingu Símans : www.siminn.is/laylowlive Heimatónleikarnir eru opnir almenningi um heim allan á netinu og ókeypis. Marka tónleikar þessir kaflaskil hjá Lay Low sem mun í framhaldinu einbeita sér að hljóðversupptökum fyrir nýja plötu. [...]
Hljómsveitin Sólstafir sendi nýlega frá sér nýtt tónleikamyndband þar sem upptökur frá áhorfendum spila stórt hlutverk. Áhorfendur voru beðnir um að taka upp myndskeið á síma og senda inn, sem skilaði sér í líflegu myndefni og fjölbreyttum sjónarhornum. Sólstafir verða með stórtónleika í Austurbæ annaðkvöld, fimmtudaginn 2.maí, ásamt Dimmu , en hljómsveitirnar tvær hafa spilað mikið á landsbyggðinni undanfarið við góðar undirtektir. Tónleikarnir í Austurbæ eru hápunkturinn á þeirri tónleikaröð og verður öllu til tjaldað. Tengfar færslur: [...]

Boðið verður upp á takmarkað magn dagpassa á ATP Iceland á Ásbrú í sumar en eins og kunnugt er munu Nick Cave & The Bad Seeds ásamt fjölda erlendra og innlendra sveita koma fram helgina 28. og 29. júní. Einnig verður einni erlendri hljómsveit bætt við á föstudeginum á næstu vikum. Miðaverð á dagpössum er 9.900 kr. en miðaverð fyrir báða daga er 16.900 kr. Hægt er að kaupa miða á miði.is . Einnig er hægt að kaupa miða með gistingu á Ásbrúarsvæðinu kjósi fólk að gista en rútuferðir verða á milli Reykjavíkur [...]

Dansk-íslenska hljómsveitin My Bubba (áður My Bubba & Mi) er nú stödd í Los Angeles að taka upp nýja breiðskífu með hinum virta pródúsent Noah Georgeson sem unnið hefur m.a. unnið með Joanna Newsom , Devendra Banheart og The Strokes . Platan verður gefin út hjá danska plötufyrirtækinu Fake Diamond Records í haust. Skífan verður vafin exótískum áhrifum og er einskonar ferðalag gegnum ímynduð höf og heimsálfur sem stúlkurnar hafa látið sig dreyma um í skandínavíska skammdeginu. [...]

Akureyski tónlistarmaðurinn Rúnar Eff er að senda frá sér sína aðra breiðskífu, Knee Deep , þann 19. apríl nk. Á plötunni eru 11 lög og um upptökur sáu Pontus Stenkvist og Vignir Snær Vigfússon . Úrval íslenskra og sænskra tónlistarmanna lagði Rúnari lið við upptökur á plötunni. Í tilefni af útgáfunni efnir Rúnar til glæsilegra útgáfutónleika í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, laugardaginn 20. apríl kl. 21.00. Sviðið verður stútfullt af frábærum hljóðfæraleikurum og söngvurum og mun 15 manna kór aðstoða Rúnar við flutning nokkurra laga, og er kórinn skipaður rjóma akureyskra söngvara. [...]

All Tomorrow's Parties á Íslandi kynna með miklu stolti komu hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar NICK CAVE & THE BAD SEEDS á ATP Iceland helgina 28.-29, sem haldin verður á gömlu NATO herstöðinni Ásbrú. Nick Cave spilaði síðast á Íslandi árið 2006 en hljómsveitin hans, The Bad Seeds, kom síðast fram á Íslandi árið 1986 þegar Nick Cave heimsótti Ísland í fyrsta sinn. Hann hafði þetta að segja um fyrirhugaða tónleika á ATP Iceland, „ uppáhalds tónlistarhátíðin mín í uppáhaldslandinu mínu .“ Tónlistardagskrá hátíðarinnar verður ekki af verri endanum en auk Nick Cave & The [...]

Hljómsveitirnar Monotown , Stafrænn Hákon , Boogie Trouble , Loji og Tonik munu koma fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess sem fer fram á Volta og Kex Hostel hvítasunnuhelgina 24. til 26. maí. Áður hafa hátíðarhaldarar tilkynnt um þátttöku hljómsveita á borð við Sykur , PVT (AUS), DZ Deathrays (AUS) og Bloodgroup . Alls munu 15 hljómsveitir koma fram á þrennum kvöldum yfir hátíðina. Miðasala er á midi.is og eru miðar á forsölutilboði til 16. apríl. Heildarpassi fyrir alla hátíðina fæst [...]

Þann 24. mars næst komandi mun hljómsveitin Nóra blása til útgáfutónleika í Tjarnabíói í tilefni af útkomu annarrar breiðskífu sinnar, Himinbrim , sem kom út skömmu fyrir jól. Á tónleikunum verður öllu tjaldað til og mun sveitin fá til liðs við sig strengjakvartett og slagverksleikara til að koma plötunni í heild sinni sem best til skila. Um upphitun sér tónlistarmaðurinn Jara en hún mun flytja lög af plötu sinni sem kemur út í næsta mánuði. Húsið opnar kl. 20:00 en tónleikar hefjast kl. 20:30. Miðinn kostar 1900 kr. og ferð miðasala fram [...]

Hljómsveitin Útidúr leggur nú lokahönd á nýja plötu sem nefnist Detour og er áætlað að hún komi út 15. apríl næstkomandi. Sveitin byrjuði að vinna í plötunni fyrir um tveimur árum síðan og ætti því að vera spennandi að heyra útkomuna en margt hefur breyst á þessum tíma, til að mynda mannabreytingar innan sveitarinnar sem skila sér í breyttum hljóm sem er að mörgu leiti rafmagnaðri og líflegri en áður. Detour inniheldur sjö lög og má heyra eitt þeirra, lagið Vultures", hér að neðan. Detour verður gefin [...]
Hljómsveitin Sólstafir er þessa stundina á fyrsta legg Evróputúrs sem í það heila spannar hálft ár. Hljómsveitin fékk viðurkenningu Loftbrúar á Íslensku Tónlistarverðlaununum í síðasta mánuði fyrir vel unnin störf á erlendri grundu, en þessi fyrsti leggur Evróputúrsins er mánaðarlangur túr með þýsku sveitinni Long Distance Calling og Norðmönnunum Audrey Horne og Sahg . Í tilefni af þessu góða gengi hefur hljómsveitin ákveðið að gefa þriðja og síðasta smáskífulag sveitarinnar, Þín Orð", af plötunni Svartir Sandar til ókeypis niðurhals. Lagið má nálgast á síðu sveitarinnar www.solstafir.net/thinord [...]

Nú er komið að því að opinbera allar þær hljómsveitir sem koma fram á Aldrei fór ég suður , árið 2013. Uppstillingarnefnd hefur skilað af sér endanlegum lista eftir mikla vinnu síðan í byrjun janúar. Að vanda verður hátíðin haldin á Ísafirði um páskahelginni og munu tónleikarnir fara fram föstudaginn 29. mars og laugardaginn 30.mars. Hljómsveitir sem koma fram þetta árið eru eftirfarandi: Abbababb Blind Bargain Borkó Bubbi Mortens Dolby Duro Fears Futuregrapher Hörmung Jónas Sig [...]

Fagnefnd skipuð þeim Gunnari Lárusi Hjálmarssyni , Dögg Mósesdóttur og Goddi hefur lokið yfirferð yfir plötuumslög og tónlistarmyndbönd ársins 2012. Hér fyrir neðan má líta tilnefningarnar en tilkynnt verður um sigurvegarana í Kastljósi RÚV á næstu dögum. Tónlistarmyndbönd Úlfur - Black Shore : Máni Sigfússon. Sykur - Curling :Addi Atlondres, Þorgeir F. Óðinsson og Einar Bragi Rögnvaldsson. FM Belfast - Delorean : Magnús Leifsson Retro [...]

Sin Fang gefur út sína þriðju breiðskífu á morgun, föstudaginn 1. febrúar. Platan hefur verið nefnd Flowers og kemur út á vegum þýska útgáfufélagsins Morr Music. Einnig mun platan koma út sem hjólabretti á vegum bandaríska hjólabrettaframleiðandans Alien Workshop. Í tilefni af útgáfu plötunnar mun Sin Fang bjóða til útgáfuhófs í kvöld kl. 20:00 á skemmtistaðnum Harlem . Léttar veitingar verða í boði, platan mun fást á sérstöku forsölutilboði og Sin Fang mun þeyta skífum. Hér að ofan er svo nýjasta myndbandið frá Sin Fang við lagið Look at the light" en [...]

Músíktilraunir 2013 verða haldnar í Silfurbergi, Hörpunni. Undankvöldin verða frá 17. til 20.mars og úrslitakvöldið þann 23.mars. Einnig hefur heimasíða Músíktilrauna 2013 verið sett í gang. Þetta er frábært tækifæri til að taka þátt í skemmtilegum og spennandi viðburði í glæsilegu umhverfi og kynna sig og kynnast öðrum í leiðinni. Miðasala verður á www.harpa.is Nú er því um að gera að dusta rykið af hljóðfærunum og byrja æfingar. Við munum opna fyrir skráningu 18. febrúar nk. og henni lýkur svo 3.mars. Skráningargjald verður það sama og síðast, 7000 kr. Fylgist með á [...]